Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Kristján Már Unnarsson skrifar 10. september 2026 15:05 Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja móta stjórnarstefnuna, ráðherrarnir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Vísir/viktor Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra.
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljörðum króna til nýframkvæmda og viðhalds á árinu 2027. Núna sé í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 32,4 milljörðum króna á næsta ári, um 2,4 milljörðum króna minna. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.Einar Árnason Guðmundur treystir sé ekki til að nefna hvaða verkefni gætu verið skorin niður. Það eigi eftir að skoða. Hann kveðst þó vonast til að þessi niðurskurður verði ekki niðurstaðan. „Framlag ríkisins til Betri samgangna er lækkað um tvo milljarða tímabundið árið 2027, samkvæmt frumvarpinu,“ segir Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna. Þorsteinn Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna.Bylgjan „Það gæti tafið upphaf hluta þeirra framkvæmda sem áætlað var að hefja á næsta ári. Við erum að skoða vandlega hvaða áhrif þetta hefur og munum uppfæra áætlanir okkar næstu vikur,“ segir Þorsteinn. Hann segir stærstu framkvæmdir, sem áætlað var að hefja á árinu 2027, vera Sæbrautarstokk og fleiri leggi í fyrstu lotu Borgarlínu. Fyrirhugaður Sæbrautarstokkur. Líklegt má telja að honum seinki, gangi niðurskurðaráformin eftir.Vegagerðin/Betri samgöngur Þegar því er velt upp hvaða framkvæmdir hjá Vegagerðinni gætu lent í niðurskurði er nærtækast að skoða hvaða framkvæmdir eru áformaðar á næsta ári. Stærstu framkvæmdir hjá Vegagerðinni árið 2027, samkvæmt samgönguáætlun, og eftir er að bjóða út og semja um, eru breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi, lokaáfangi í Gufudalssveit, Bíldudalsvegur, brúarsmíði yfir Skjálfandafljót, færsla hringvegarins í Reyðarfjarðarbotni, byrjunarframkvæmdir á Axarvegi og breikkun Suðurlandsvegar í útjaðri í Reykjavíkur, milli Gunnarshólma og Hólmsár. Frá Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Búið er að bjóða út breikkun kaflans milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga og fyrirhugað að tilboð verði opnuð í næstu viku, þann 15. september
Fjárlagafrumvarp 2027 Vegagerð Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Samgönguáætlun Borgarlína Veggjöld Kílómetragjald Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir „Við erum að laga Ísland“ Í stefnuræðu sinni hampaði forsætisráðherra því að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu staðnað og sagði ríkisstjórnina ætla að setja málefni barna í forgang í vetur. Ríkisstjórnin sé að „laga Ísland.“ 9. september 2026 20:01 Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. 8. september 2026 17:09 Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15 Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Fleiri fréttir Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Sjá meira
„Við erum að laga Ísland“ Í stefnuræðu sinni hampaði forsætisráðherra því að verðhækkanir á húsnæðismarkaði hefðu staðnað og sagði ríkisstjórnina ætla að setja málefni barna í forgang í vetur. Ríkisstjórnin sé að „laga Ísland.“ 9. september 2026 20:01
Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. 8. september 2026 17:09
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. 7. september 2026 10:15