Viðskipti innlent

Fast­eigna­markaðurinn kólnar enn

Telma Tómasson og Samúel Karl Ólason skrifa
Íbúðaverð hefur áfram hækkað hóflega.
Íbúðaverð hefur áfram hækkað hóflega. Vísir/Vilhelm

Fasteignamarkaðurinn kólnar enn og íbúðaverð hækkar áfram hóflega á milli mánaða. Þetta er mat fasteignasala og er greint frá í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þar segir að kaupsamningar um fyrstu fasteign hafi verið færri en síðustu ár, hlutdeild fyrstu kaupenda hafi þó verið há undanfarna mánuði sem áfram njóti í miklum mæli stuðnings frá nákomnum.

Auk þess hefur ásókn í hlutdeildarlán verið mikil undanfarna mánuði. Í skýrslu HMS kemur einnig fram að leiguverð hafi lækkað talsvert á milli mánaða, sem skýrist þó af því að leigumarkaðurinn litast af stúdentaíbúðum, og um sé að ræða hefðbundna árstíðasveiflu við upphaf skólaárs.

Í tilkynningu frá HMS kemur einnig fram að bankarnir geri ráð fyrir frekari hækkun íbúðalánavaxta á næstu sex mánuðum, einkum vegna væntinga um hærri stýrivexti og aukinn fjármögnunarkostnað.

Þetta mat er byggt á nýrri útlánakönnun Seðlabankans. Þar segir einnig að lánamarkaðurinn hafi þegar skilað stýrivaxtahækkun Seðlabankans frá því í ágúst út í breytilega óverðtryggða húsnæðislánavexti, þótt minni breytingar hafi orðið á föstum óverðtryggðum vöxtum.

Þá ber byggingarmarkaðurinn áfram merki kólnunar með fækkun starfsfólks og minni íbúðafjárfestingu á milli ára.

Í skýrslu HMS segir að velta í byggingu húsnæðis í maí og í júní hafi dregist lítillega saman að nafnvirði frá sama tíma í fyrra. Velta í mannvirkjagerð og sérhæfðri byggingarstarfsemi hafi á móti aukist talsvert á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×