Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Kjartan Kjartansson skrifar 18. september 2026 10:49 Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, (t.v.) telur að Nooshi Dadgostar (t.h.) og Vinstriflokknum hafi tekist vel að virkja atkvæði „íslamista“. Foreldrar Dadgostar voru íranskir flóttamenn. Vísir/EPA Leiðtogi fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata heldur því fram að velgengni Vinstriflokksins í þingkosningum um síðustu helgi hafi verið vegna „íslamista“. Svíþjóðardemókratar töpuðu fylgi í fyrsta skipti.
Vinstriflokkur Nooshi Dadgostar bætti við sig sex þingmönnum í kosningunum í Svíþjóð á sunnudag. Stjórnarandstöðuflokkarnir unnu nauman meirihluta þingsæta en óljóst er hvort þeim auðnist að mynda ríkisstjórn saman. Svíþjóðardemókratar, sem voru næststærsti flokkurinn á síðasta þingi og vörðu minnihlutastjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra falli, töpuðu aftur á móti ellefu þingmönnum á sama tíma og stjórnarflokkarnir bættu lítillega við sig. Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, virðist ekki taka ósigrinum vel. Í fyrstu opinberu ummælum sínum eftir að kosningaúrslitin urðu endanlega ljós í gær sagði hann að aðeins íslamistar gætu skýrt fylgnisaukningu Vinstriflokksins. „Engin venjuleg manneskja kýs flokk eins og þennan,“ hefur sænska ríkisútvarpið eftir Åkesson. Hann telur að Svíþjóðardemókratar kunni að hafa tapað atkvæðum til annarra flokka sem náðu ekki mönnum inn á þing. Öðru máli gegni um vinstriflokkana. „Það eru sterkar vísbendingar um að Vinstriflokknum og jafnaðarmönnum hafi tekist vel að virkja íslamistakjósendur sem gátu áður kosið aðra flokka,“ fullyrti Åkesson. Dæmigert fyrir orðræðu Svíþjóðardemókrata Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, segir ummæli Åkesson lýsandi fyrir orðræðu flokks hans og viðhorf hans til fólks. „Lýðræðið snýst um að fólk sé allt jafn mikils virði. Ein manneskja, eitt atkvæði. Við erum öll jafn mikils virði. Að efast um atkvæði sumra borgara er það sama og að efast um mannlega reisn þeirra,“ sagði Andersson. Þetta eru ekki fyrstu framandlegu skýringar fulltrúa Svíþjóðardemókrata, sem eiga uppruna sinn að rekja til nýnasistahreyfingar, á kosningaúrslitunum. Einn þeirra sagði í vikunni að 200.000 nýir ríkisborgarar í Svíþjóð hafi ráðið úrslitum og hélt því fram að vinstrimenn reyndu vísvitandi að fjölga kjósendum af erlendum uppruna til þess að bæta sigurlíkur sínar í kosningum. Vandræðagangur Vinstriflokksins í aðdraganda kosninga virðist ekki hafa haft slæm áhrif á gengi hans í kosningunum. Töluvert var um hreinsanir á frambjóðendum á listum flokksins eftir að vafasöm ummæli þeirra voru grafin upp í kosningabaráttunni, þar á meðal lof um Vladímír Pútín Rússlandsforseta og um Hamas-samtökin palestínsku.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Trúmál Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira