Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Birgir Olgeirsson skrifar 21. september 2026 13:03 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði fyrir samningafundinn á föstudag að samstaða væri um nokkur atriði en ekkert hefði þokast í launaliðnum. einar Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september.
Fundi hjá ríkissáttasemjara á föstudag lauk án árangurs. Hann var sá fyrsti formlegi síðan slitnaði upp úr viðræðum 22. júní. Samningar hafa verið lausir frá áramótum. Verkfallsboðunin var samþykkt með 88,3 prósentum greiddra atkvæða og kjörsókn var 92 prósent. Deila um hvað flugvirkjar eigi inni Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði fyrir föstudagsfundinn að samstaða væri um nokkur atriði í viðræðunum. „En varðandi launaliðinn þá hefur ekkert þokast í því,“ sagði Óskar. Félagið vill vinna upp kjaraskerðingu sem það segir flugvirkja hafa tekið á sig með langtímasamningi í heimsfaraldrinum 2020. Samkvæmt tölum félagsins hækkuðu grunnlaun þeirra um 27,2 prósent frá 2019 til 2025 en um 50,8 prósent hjá samanburðarhópi iðnfræðinga sem Samtök atvinnulífsins semja einnig við. Óskar Einarsson segir flugvirkja ávallt reiðubúna að veita undanþágur frá verkfalli skapist neyðarástand. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall þeirra 23. september.Einar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir flugvirkja hafa fengið hækkanir í takt við almenna markaðinn. Félagið hafi teygt sig eins langt og það geti og vilji óháðan gerðardóm um launin. Samkvæmt Samtökum atvinnulífsins metur Icelandair kostnaðaráhrif launakrafnanna á 25 til 30 prósent á tveimur árum. Flugvirkjafélagið segir villandi að tala um beina launahækkun án tillits til fyrri launaþróunar. Sáttasemjari getur lagt fram miðlunartillögu til atkvæðagreiðslu. Hann þarf að ráðfæra sig við nefndirnar en ekki fá samþykki þeirra. Það frestar ekki verkfallinu sjálfkrafa. Milljarður eða meira á dag í húfi Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur greinina geta tapað einum til einum og hálfum milljarði króna á dag ef komufarþegar Icelandair skila sér ekki til landsins. Matið byggist á um 7.500 daglegum komufarþegum í september, tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum tengdum þeim og allt að 60 prósenta hlutdeild Icelandair. Gististaðir, bílaleigur og afþreyingarfyrirtæki sitji eftir með kostnað við undirbúning og mönnun þótt tekjurnar bregðist. SAF sagði á laugardag að fyrirtæki hefðu þegar fengið fjölda afbókana og kallaði eftir inngripi stjórnvalda næðust ekki samningar. Samkvæmt Icelandair féllu 65 flug niður og ferðir tólf þúsund farþega röskuðust í sólarhringsverkfalli 2014. Í 46 klukkustunda verkfalli 2017 voru tölurnar 64 flug og tuttugu þúsund farþegar. Kostnaður Icelandair vegna þess verkfalls var fjórar milljónir Bandaríkjadala. Lög sett 2010 en afstýrt 2014 Óskar túlkaði tilkynningar Icelandair um 23. og 24. september þannig í Vikulokunum á laugardag að félagið vænti inngrips stjórnvalda. Spurður hvort hann teldi það líklegt svaraði hann: „Já, ég les bara í þetta eins og almenningur.“ Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra hafði 15. september sagt að lagasetning hefði ekki komið til umræðu og hvatt aðila til að semja. Alþingi samþykkti lög á verkfall flugvirkja Icelandair 22. mars 2010, sama dag og það hófst. Samningurinn var framlengdur til nóvemberloka nema nýr næðist. Í júní 2014 var Alþingi kallað saman og frumvarp lagt fram vegna boðaðs ótímabundins verkfalls 19. júní. Flugvirkjar aflýstu því kvöldið áður til að afstýra lagasetningu. Samningar náðust síðar, 4. júlí.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Kjaramál Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Telur yfir milljarð á dag í húfi Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 14. september 2026 16:14 Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. 16. september 2026 12:02 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Telur yfir milljarð á dag í húfi Tekjutap ferðaþjónustunnar gæti numið rúmum milljarði króna á dag vegna verkfalls flugvirkja Icelandair, ef farþegar sem ættu að koma þann dag skila sér ekki til landsins. Þetta er mat Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 14. september 2026 16:14
Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra. 16. september 2026 12:02