Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar 23. september 2026 06:03 Ferðaþjónustan hefur verið einn helsti drifkraftur farsældar Íslendinga síðasta áratuginn. Hún skilar meiri gjaldeyristekjum til landsins en nokkur önnur atvinnugrein og beinar skatttekjur ríkis og sveitarfélaga af greininni hafa síðustu ár numið meira en 200 milljörðum króna á ári. Það er álíka fjárhæð og áætlaður heildarkostnaður við nýjan Landspítala. Ferðaþjónustan skapar störf um allt land og vegur gistiþjónustan þar þyngst. Greinin hefur verið mikilvæg stoð byggðafestu og vegið á móti samdrætti í öðrum atvinnugreinum. Afleidd áhrif ferðaþjónustunnar eru einnig mikil sem fjöldi annarra en starfa í ferðaþjónustunni njóta ávinnings af. Uppgangur hennar hefur auðgað mannlífið og skapað fjölbreyttara úrval veitingastaða, menningarviðburða og afþreyingar sem við Íslendingar njótum. Þá er ótalinn fjöldi flugfélaga sem hingað fljúga þökk sé uppgangi í ferðaþjónustunni síðasta áratug. Stóraukin flug til og frá landinu eru lífsgæði fyrir alla sem hér búa. Þessi uppgangur varð ekki til af sjálfu sér. Hann er afrakstur framtakssemi einstaklinga og fjölskyldna sem hafa tekið áhættu, lagt eigið fé og ótal vinnustundir í að byggja upp fyrirtæki sem þjónusta ferðamenn. Fyrirtæki sem hafa skapað fjölda starfa, en á undanförnum árum þurft að takast á við mikla óvissu vegna eldgosa og heimsfaraldurs, auk þess að glíma við háa vexti og áskoranir tengdar rekstri hérlendra flugfélaga. Í könnun sem FHG sendi aðildarfélögum sínum í gististarfsemi síðasta vor var spurt hvernig þau sæju afstöðu núverandi ríkisstjórnar til ferðaþjónustunnar. Yfir 90% félagsmanna töldu hana neikvæða. Það er áhyggjuefni. Til að ferðaþjónustan geti áfram verið ein meginstoð íslensks efnahagslífs þarf öflugt samstarf greinarinnar og stjórnvalda. Fyrirtækin þurfa áfram að bæta gæði þjónustunnar, en hlutverk ríkis og sveitarfélaga er að tryggja samkeppnishæft starfsumhverfi, trausta innviði og markvissa markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Undanfarið hafa komið fram vísbendingar um minnkandi eftirspurn eftir Íslandsferðum yfir vetrartímann, sem er mikið áhyggjuefni þar sem vetrarferðamennska hefur verið markvisst byggð upp hér á landi síðustu áratugi. Á sama tíma hafa samkeppnislönd okkar, eins og Noregur, aukið verulega markaðssetningu gagnvart ferðamönnum. Samkeppnishæfni Íslands er því að gefa eftir gagnvart helstu keppinautum. Þess vegna vekja fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustuna áhyggjur. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 eru áform um að hækka gistináttaskatt enn á ný. Síendurteknar skattahækkanir skapa óvissu og veikja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Samhliða er boðað nýtt gjald fyrir aðgang að ferðamannastöðum í eigu ríkisins. Alþingi samþykkti ferðamálastefnu samhljóða í júní 2024 sem gerir ráð fyrir að skoðað sé afnám gistináttaskatts samhliða upptöku slíks gjalds. Það voru tengdar aðgerðir, ekki aðskildar. Nú á að gera hvort tveggja: taka upp nýtt gjald og hækka gistináttaskatt. Það er ekki farsæl leið. Við eigum að fjárfesta í innviðum, bæta samgöngur og standa vörð um náttúruna. Við eigum að tryggja að við séum ekki eftirbátar nágrannaríkja okkar í markaðssetningu. Síðast en ekki síst eigum við að styðja við samkeppnishæfni greinarinnar og tryggja fyrirsjáanleika í umgjörð hennar. Öflug ferðaþjónusta eykur velsæld og lífsgæði á Íslandi. Ég hvet stjórnvöld til að staldra við. Stöndum vörð um ferðaþjónustuna og lítum á hana sem mikilvæga fjárfestingu til framtíðar í þágu þjóðarinnar. Höfundur er formaður FHG (Fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun