Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir og Ingólfur Bender skrifa 23. september 2026 07:47 Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að hraður vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði hefur ekki aðeins skapað mikil útflutningsverðmæti heldur jafnframt stuðlað að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Greinin er orðin ein af fjórum meginstoðum útflutnings á Íslandi og stóð árið 2025 undir nær fimmtungi útflutningstekna þjóðarbúsins. Ávinningurinn nær því langt út fyrir fyrirtækin sjálf: sterkari tækni- og hugverkaiðnaður eflir undirstöður hagkerfisins og skapar forsendur fyrir betri lífskjörum landsmanna. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hafa ríflega áttfaldast frá árinu 2008, eða farið úr 46 milljörðum króna í 369 milljarða árið 2025. Á sama tíma hefur hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins aukist úr 7% í nær 19%. Verðmætasköpun greinarinnar til landsframleiðslu nam ríflega 440 milljörðum króna árið 2025 og þar störfuðu þá um 18 þúsund manns. Það sem greinir tækni- og hugverkaiðnað sérstaklega frá öðrum útflutningsstoðum er stöðugleiki. Greining SI sýnir að þetta hefur verið stöðugasta útflutningsstoð Íslands síðustu ár og að vöxtur hennar hefur dregið úr sveiflum í heildarútflutningi þjóðarbúsins um allt að 16% frá árinu 2008. Atvinnugreinin hefur þannig orðið mikilvægt mótvægi við sveiflur annars staðar í hagkerfinu og styrkt viðnámsþrótt þess gagnvart ytri áföllum. Þessi verðmætasköpun skilar sér jafnframt með beinum hætti til samfélagsins. Vítt skattspor tækni- og hugverkaiðnaðar nam 186 milljörðum króna árið 2024 og jókst frá fyrra ári. Stærstur hluti þrönga skattsporsins byggir á launatengdum gjöldum, einkum tekjuskatti og útsvari launþega, enda byggir greinin fyrst og fremst á sérhæfðum mannauði, mikilli framleiðni og vel launuðum störfum. Tekjurnar renna þannig í sameiginlega sjóði og styrkja fjármögnun þeirrar þjónustu og innviða sem samfélagið allt reiðir sig á. Áframhaldandi vöxtur er ekki sjálfgefinn Til að þessi ávinningur fyrir samfélagið haldi áfram að aukast þarf að tryggja að tækni- og hugverkafyrirtæki kjósi að byggja upp starfsemi sína hér á landi. SI hafa unnið markvisst að því að styðja við stjórnvöld til þess að bæta starfsskilyrði fyrirtækjanna, ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi og tryggja að Ísland geti keppt við önnur lönd á sviði fjárfestinga, að sækja sérfræðinga og tryggja fjárfestingu hér á landi í rannsóknum og þróun, sem er undirstaða tækni- og hugverkaiðnaðar. Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar hafa þar skipt miklu máli. Þeir hafa reynst öflugt tæki til að hvetja til fjárfestinga í rannsóknum, þróun og nýsköpun og átt mikilvægan þátt í uppbyggingu greinarinnar. Kerfið byggir á því að fyrirtækin sjálf taki ákvörðun um fjárfestingu í verkefnum sem eru líkleg til að skapa verðmæti og hið opinbera veiti stuðning með skattahvötum. Samkeppnin um slík verkefni er alþjóðleg. Fyrirtæki geta valið hvar þau byggja upp rannsóknar- og þróunarstarfsemi, ráða sérfræðinga og ráðast í nýjar fjárfestingar. Því þarf íslenskt starfsumhverfi að vera samkeppnishæft, fyrirsjáanlegt og að minnsta kosti jafn hvetjandi og í þeim ríkjum sem Ísland ber sig helst saman við. Þar skipta öflugir og fyrirsjáanlegir skattahvatar og nægt framboð sérhæfðs mannauðs lykilmáli. Efla þarf menntun í tækni- og vísindagreinum og greiða fyrir aðgengi fyrirtækja að erlendum sérfræðingum. Tækni- og hugverkaiðnaður hefur alla burði til að verða verðmætasta útflutningsstoð Íslands fyrir lok þessa áratugar ef rétt er á málum haldið. Það er ekki aðeins tækifæri fyrir fyrirtækin í greininni heldur fyrir þjóðarbúið allt. Aukinn útflutningur sem byggir á hárri framleiðni og þar með fjölgun verðmætra starfa skapa sterkari tekjustofna fyrir ríkið, meiri efnahagslegan stöðugleika og betri lífskjör til framtíðar. Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar er því ekki hagsmunamál einnar atvinnugreinar. Hann er sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Með því að tryggja áframhaldandi skilyrði til vaxtar styrkjum við undirstöður hagkerfisins og getu samfélagsins til varðveita góð lífskjör. Ávinningurinn er okkar allra. Erla Tinna er viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins og Ingólfur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Bender Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun