Rooney tekur fyrir kjaftasögur Stefán Árni Pálsson skrifar 25. september 2026 07:00 Rooney hefur lagt mikið af undanfarna mánuði. Vísir/getty Wayne Rooney hefur tekið miklum breytingum á undanförnum mánuðum og ræddi hann þær þegar hann mætti í breska þáttin This Morning á ITV í gær.
Rooney, sem er fertugur, kom fram í þættinum ásamt eiginkonu sinni, Coleen, til að kynna nýja heimildarseríu þeirra, The Real Rooneys. Mikil athygli hefur þó verið á breyttu útliti fyrrverandi enska landsliðsmannsins, sem hefur greinilega lést og breytt lífsstíl sínum. Í viðtalinu sagði Rooney að hann hefði einfaldlega lagt áherslu á að verða heilbrigðari. Hann sagðist hafa hætt að drekka áfengi um tíma, breytt mataræðinu og aukið við æfingar. „Mér líður frábærlega. Ég hef ekki drukkið í smá tíma. Ég vildi bara verða heilbrigðari og líða betur, þannig að ég breytti mataræðinu og fór að æfa,“ sagði Rooney við þau Ben Shephard og Cat Deeley. Enginn penni Rooney þurfti jafnframt að svara þeim orðrómi að hann hefði notað svokallaða megrunarpennann til að ná niður í þyngd. „Allir eru að segja að ég sé á þessu penna-dæmi, en ég er það ekki. Ég hef verið að æfa til að reyna að líta betur út og vera heilbrigðari,“ sagði hann. Breytingarnar snúast þó ekki eingöngu um þyngdartap. Rooney greindi einnig frá því að hann hefði farið í aðgerð á nefi eftir að hafa brotið það tvisvar á knattspyrnuferlinum. Hann hefur auk þess byrjað í tannréttingameðferð. Rooney hefur því á síðustu mánuðum tekið upp breyttari lífsstíl og segir sjálfur að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að bæta heilsuna, frekar en að ná ákveðnu útliti. Viðtalið fór fram í tilefni af frumsýningu The Real Rooneys, þar sem myndavélar fylgja Wayne og Coleen og fjölskyldulífi þeirra eftir. Serían kemur út á Disney+ í gær.
Manchester United Enski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira