Freyr látinn fara frá Eflingu Jakob Bjarnar skrifar 25. september 2026 12:38 Freyr ásamt konu sinni Snærósu Sindradóttur en hún lét til sín taka í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Freyr veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið en hann var nýverið látinn taka pokann sinn hjá Eflingu. aðsend Freyr Rögnvaldsson upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera.
Freyr var kallaður í fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þetta væri svo nýskeð, og honum væri brugðið. Hann sagðist eiga eftir að átta sig á stöðunni og ræða málið við fjölskyldu sína. Eftir því sem Vísir kemst næst hafa ekki verið gerðar athugasemdir við störf Freys en Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri sá um uppsögnina og hún mun hafa sagt eitthvað á þá leið að henni hafi verið gert að segja honum upp. Engar skýringar fylgdu en Freyr getur lögum samkvæmt kallað skriflega eftir skýringum á uppsögninni. Að sögn framkvæmdastjóra Eflingar hefur uppsögn Freys ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera.vísir/anton brink Kenningar eru uppi um að ástæðurnar séu af pólitískum toga og megi rekja til þess að kona Freys, Snærós Sindradóttir, starfaði sem framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar á meðan Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var hins vegar áberandi í hópi Nei-sinna í kosningabaráttunni. Vísir náði ekki í Perlu en sendi henni fyrirspurn um málið og hún sagðist geta staðfest að Freyr væri ekki lengur hjá Eflingu. Hún segist ekki ætla að ræða ástæður uppsagnarinnar við fjölmiðla. „En ég get þó sagt að þær tengdust að engu leyti ESB eða nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Tímamót Kjaramál Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Stéttarfélög Vistaskipti Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira