Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 17:32 Gylfi Þór í leik gegn Wales á Laugardalsvelli vísir/Anton Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gerir tvær breytingar á byrjunarliði Íslands milli leikja. Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn á miðjuna gegn Lúxemborg ytra í Þjóðadeild UEFA í kvöld og Logi Tómasson kemur inn í vörnina.
Úr byrjunarliðinu fara þeir Jón Dagur Þorsteinsson og Albert Guðmundsson. Albert meiddist í síðasta leik gegn Eistlandi og verður ekki meira með landsliðinu í þessu verkefni. Hákon Rafn Valdimarsson, sem var besti leikmaður Íslands í leiknum gegn Eistlandi, stendur sem fyrr í marki liðsins. Í fjögurra manna varnarlínu eru Stefán Teitur Þórðarson og Daníel Leó Grétarsson í hjartanu, Guðlaugur Victor Pálsson er í hægri bakverði og Logi Tómasson kemur inn í vinstri bakvörð fyrir Mikael Egil Ellertsson sem færist upp í vinstri kantstöðuna í stað Alberts Guðmundssonar. Úti hægra megin má gera ráð fyrir því að Hákon Arnar Haraldsson verði og að á miðri miðjunni verði þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Ísak Bergmann Jóhannesson. Fremstir eru svo landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen. Pressupróf fyrir Arnar og hans menn Pressa er á íslenska landsliðinu að sækja úrslit í leik kvöldsins eftir dapra frammistöðu og jafntefli í fyrstu umferðinni hér heima á Laugardalsvelli gegn landsliði Eistlands. Rúmir tíu mánuðir hafa liðið síðan Ísland sótti síðast sigur í keppnisleik, þá gegn Aserbaíjan. Liðið hefur aðeins unnið þrjá leiki í sextán tilraunum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Tveir þeirra hafa komið í keppnisleikjum, báðir gegn Aserum og einn í æfingarleik gegn Skotlandi. Lúxemborg hóf Þjóðadeildina á sterkum útisigri gegn Búlgaríu og strákarnir því að mæta liði í kvöld sem er með sjálfstraustið í botni. Leikur Lúxemborgar og Íslands hefst klukkan korter í sjö og er sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira