Sport

Dæmdur úr keppni fyrir að slá í á­horf­anda

Andri Broddason skrifar
Daniil Medvedev var fullur eftirsjá eftir að hann sló bolta í auga áhorfanda.
Daniil Medvedev var fullur eftirsjá eftir að hann sló bolta í auga áhorfanda. Lintao Zhang/Getty Images

Athyglisvert atvik gerðist á opna kínverska mótinu í tennis þar sem Daniil Medvedev mætti Novak Djokovic í undanúrslitum mótsins. Medvedev endaði á því að vera dæmdur úr keppni fyrir að slá boltanum í áhorfanda eftir að hafa tapað stigi.

Medvedev var undir í leiknum þegar atvikið gerðist en Serbinn Djokovic þurfti að vinna aðeins eina lotu til viðbótar til þess að vera tveimur settum yfir í leiknum. Djokovic vann stig sem skoppaði af vegg fyrir aftan völlinn og þar sló Medvedev boltann með pirringi upp í stúkuna.

Þar lenti boltinn í auga eins áhorfanda sem ríghélt utan um andlitið og virtist vera sárþjáður. Læknar komu og aðstoðuðu áhorfandann en hann var á endanum færður úr stúkunni til aðhlynningar.

Dómari leiksins ræddi við bæði Medvedev og Djokovic og varð leikurinn ekki lengri þar sem Medvedev var dæmdur úr keppni. Eftir keppnina bað Medvedev áhorfandann afsökunar í viðtali og sá hann eftir gjörðum sínum.

„Ég er að reyna að ná í hann ef hann vill fá að ræða málin. Vonandi get ég beðist afsökunar í persónu og séð hver staðan á honum er. Ég bara vona að það sé í lagi með hann, það er það sem skiptir mestu máli,“ sagði Medvedev og virtist þetta hafa verið óviljaverk.

Djokovic var feginn að hafa komist í úrslitin en hann fann til með Medvedev. Djokovic lenti í svipuðu atviki á Opna bandaríska risamótinu þar sem hann var dæmdur úr keppni eftir svipað atvik. Hann var þó handviss um að Medvedev hefði ekki gert þetta viljandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×