Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Andri Broddason skrifar 5. október 2026 19:00 Cristiano Ronaldo er mikils metinn innan Al Nassr. Abdullah Ahmed/Getty Images Eftir dramatík innan herbúða portúgalska landsliðsins hefur Cristiano Ronaldo snúið aftur til Sádi-Arabíu þar sem hann spilar með Al Nassr. Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals og fyrrverandi þjálfari Al Nassr, sagði að Ronaldo væri velkominn til baka í landsliðið en hann ætlaði ekki að biðjast fyrirgefningar.
Ronaldo virðist hafa farið í fýlu eftir að hafa ekki komið við sögu í fyrsta leik Portúgals í landsleikjaglugganum þar sem liðið vann Noreg 2-1. Eftir að hafa farið á fund með Jesus, landsliðsþjálfara og forseta portúgalska knattspyrnusambandsins, yfirgaf Ronaldo æfingabúðir Portúgals daginn fyrir leik liðsins gegn Danmörku. Ekki er vitað hvort að Ronaldo muni snúa aftur í landsliðið en næsti landsleikjagluggi verður um miðjan nóvember. Ronaldo sagðist ætla að segja frá því sem gerðist þegar tími til þess kæmi sem gefur í skyn ranglæti í hans garð. الرياضي الأعظـم .. في قلـب نجـد .. في #النصر 💛 https://t.co/ZzawHYGU2N— نادي النصر السعودي (@AlNassrFC) October 5, 2026 Þrátt fyrir vesen hjá landsliðinu virðist honum líða vel hjá félagsliðinu Al Nassr þar sem félagið deildi mynd af Ronaldo undir titlinum „Besti íþróttamaðurinn.. í hjarta Najd,“ sem er landsvæði í Sádi-Arabíu. Al Nassr er í þriðja sæti sádi-arabísku úrvaldsdeildarinnar þegar sjö umferðir eru búnar. Liðið er aðeins tveim stigum frá toppliði Al Hilal og er liðið því á góðum stað. Í fyrstu sjö leikjunum er Ronaldo búinn að skora þrjú mörk en hann er enn að ná markmiði sínu um að skora þúsund mörk á sínum meistaraflokksferli. Hann er búinn að skora 979 mörk í heildina og þarf hann því aðeins að skora 21 mark til viðbótar til þess að ná markmiði sínu.
Sádiarabíski boltinn Portúgal Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira