Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir og Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifa 6. október 2026 14:02 Barn sem sýnir merki um vanda þarf þjónustu sem bregst hratt við. Ef ábyrgð færist milli stofnana án þess að stuðningur fylgi getur kerfið sjálft aukið vandann. Við þurfum því að skoða ákvarðanir okkar jafn gagnrýnið og hegðun barnsins. Þetta var niðurstaða okkar eftir fyrirlestur Caroline Lanskey frá Cambridge-háskóla á ráðstefnunni Löggæsla og samfélagið sem haldin var við Háskólann á Akureyri dagana 30. september til 1. október 2026. Ráðstefnan var bæði fræðandi og gagnleg til þess eins að bæta þjónustu við barnið og fjölskyldu þess. Caroline Lanskey fjallaði á ráðstefnunni um ójöfnuð í ákvarðanatöku um börn og ungmenni innan réttarvörslukerfa. Erindið vakti hjá okkur spurningar um hvernig þjónustuveitendur hér á landi bregðast við vanda barna en eitt af okkar hlutverkum í starfi verkefnastjóra forvarna, lýðheilsu og félagsauðs er að tengja saman þjónustu og stuðla að snemmtækum stuðningi í hverfum Reykjavíkur. Þegar ákvarðanir auka vandann Rannsóknir Lanskey og Yannick van den Brink (2026) benda til þess að of mikil hlutdeild barna með félagslegar og heilsufarslegar áskoranir í réttarvörslukerfum verði ekki skýrð með brotahegðun einni saman. Viðbrögð kerfisins skipta líka máli. Í líkani þeirra eru sjö áhrifasvið: viðhorf fagfólks, samskipti við barnið, starfshættir stofnana, samstarf þeirra, reglur innan kerfa, samspil kerfanna og samfélagslegar aðstæður. Áhrifasviðin skarast og geta saman mótað ákvarðanir um barn. Hugsum okkur barn sem missir tengsl við skólann, hættir í tómstundum og kemst ítrekað í snertingu við lögreglu. Hver aðili getur brugðist við sínum hluta vandans án þess að nokkur fylgi heildinni eftir. Ákvörðun í einu kerfi getur þannig þrengt möguleika barnsins í öðru. Þegar stuðningur veikist á fleiri en einum stað getur óhagræði safnast upp. Þarna hjálpar líkan Lanskey og van den Brink okkur að sjá lengra en eitt atvik. Við þurfum að skoða hvernig ákvörðun um skólasókn, aðgang að stuðningi í skóla, félagsmiðstöð, hjá íþróttafélagi eða viðbrögð lögreglu tengjast öðrum þáttum í lífi barnsins. Fyrirlesturinn beindist að réttarvörslukerfum en að okkar mati er þessi sýn líka gagnleg við innleiðingu farsældarlaganna: þjónustan þarf að taka mið af heildaraðstæðum barnsins. Samstarfið þarf að skila sér í framkvæmd Í Reykjavík er þegar til sameiginlegur grunnur að slíkri vinnu. Þann 4. desember 2024 var undirrituð samstarfsyfirlýsing vegna barna í viðkvæmri stöðu á starfssvæðum miðstöðva Reykjavíkurborgar. Að henni standa lögreglustjórinn og sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, heilsugæslan, skóla- og frístundaþjónusta og deildir barna og fjölskyldna á miðstöðvunum, Barnaverndarþjónusta Reykjavíkur og framhaldsskólar í Reykjavík. Yfirlýsingin tekur meðal annars til barna sem eru þolendur eða gerendur í ofbeldismálum og barna sem búa við aðstæður sem kalla á tilkynningu til barnaverndar. Aðilarnir lýsa vilja til að samræma verklag, þróa samþætta þjónustu og vinna saman að vernd barna innan ramma laga, persónuverndar og mannréttinda. Undirskrift tryggir þó barni ekki stuðning. Til þess þarf fólk sem heldur samstarfinu virku og fylgir því eftir. Frá ársbyrjun 2024 höfum við verkefnastjórar á miðstöðvum Reykjavíkur leitt saman þjónustuveitendur og þau sem sinna almennri þjónustu samkvæmt farsældarlögunum. Við höfum skapað vettvang fyrir samtal og samráð, stutt sameiginlega fræðslu og fylgt eftir sameiginlegum niðurstöðum svo þær verði að aðgerðum. Markmiðið er að aðilar þekkist, viti hvert þeir geta leitað og geti brugðist fyrr við vísbendingum um vanda. Samstarfið við lögreglu er hluti af þessari vinnu en við höfum haft skýrt hlutverk, tíma og umboð til að sinna samþættingunni og samstarfi við þjónustuveitendur. Þetta starf tengist sérstaklega tveimur áhrifasviðum í líkaninu: samstarfi stofnana og samspili þjónustukerfa. Þar getur óskýr ábyrgð eða veik eftirfylgd orðið til þess að stuðningur berist barni seint. Framlag okkar sem þjónustuveitenda felst meðal annars í að styrkja þessi tengsl og skýra leiðir að snemmtækum stuðningi. Þess vegna þarf mat á starfinu að ná til þess hvernig samstarfið virkar í framkvæmd. Verkefnum þess sem tengir þjónustuna saman verður ekki sjálfkrafa sinnt af öllum öðrum. Samstarf við lögreglu þarf að hefjast snemma Lögreglan getur séð vísbendingar um áhættu sem aðrir sjá ekki. Skólinn getur tekið eftir aukinni fjarveru og starfsfólk félagsmiðstöðvar eða íþróttafélags getur orðið vart við breytt samskipti eða brottfall frá vinahópi og íþróttum. Þekking hvers aðila er takmörkuð ef hún nýtist ekki í viðeigandi samstarfi. Fyrirlestur Lanskey minnti okkur á að það sem gerist milli kerfa getur haft áhrif á næstu ákvörðun um barnið. Ef lögregla verður til dæmis vör við endurtekin atvik sem varða barn þarf að kanna stuðningsþörf samhliða viðbrögðum við atvikunum. Hvernig er skólasóknin? Hefur barnið traust tengsl við fullorðna? Þurfa foreldrar aðstoð? Við verkefnastjórar styðjum samstarfið og skýrum þjónustuleiðir. Samþætting þjónustu við einstakt barn fer síðan eftir hlutverkum tengiliða, málstjóra og viðkomandi þjónustuveitenda. Það þarf að vera ljóst hver tekur næsta skref. Farsældarlögin styðja þessa nálgun. Þau telja löggæslu til farsældarþjónustu, skilgreina snemmtækan stuðning á fyrsta þjónustustigi og skylda þjónustuveitendur til að taka eftir ófullnægðum þörfum barna og bregðast við þeim. Þau gera jafnframt ráð fyrir almennri samvinnu, þverfaglegri þekkingu og gagnkvæmri fræðslu. Með virku samstarfi getum við unnið að því að viðbrögð ólíkra aðila styðji hvert annað. Miðlun upplýsinga um einstök börn þarf að byggjast á viðeigandi lagaheimildum og þátttöku barns og foreldra samkvæmt þeim reglum sem gilda. Samstarf þjónustuveitenda þarf að vera skýrt og skiljanlegt þeim sem þjónustan á að styðja. Traust fjölskyldunnar skiptir þar máli. Reynsla barnsins þarf að hafa vægi Líkan Lanskey og van den Brink (2026) beinir líka athygli að viðhorfum fagfólks og samskiptum þess við barnið. Hvaða hugmyndir móta túlkun okkar á hegðun þess? Geta fordómar eða staðalmyndir ráðið viðbrögðunum? Hér tengjum við áfallamiðaða nálgun við umræðuna: að skoða hegðun í samhengi við reynslu barnsins og gæta þess að viðbrögðin styrki öryggi og traust. Áhersla Lanskey á reynslu þeirra sem hafa sjálfir farið í gegnum kerfin minnti okkur á að samráð fagfólks nægir ekki. Barnið þarf að skilja hvað gerist næst, fá að segja frá og vita við hvern það getur leitað. Börn geta þurft að axla ábyrgð á hegðun sinni. Við berum um leið ábyrgð á því hvernig við mætum þeim og hvort stuðningurinn skili sér. Fyrirlesturinn gaf okkur því ástæðu til að skoða eigin starfshætti og samstarf með gagnrýnum augum. Samstarfsyfirlýsingin frá 2024 og farsældarlögin gefa ramma fyrir viðbrögðin. Starf verkefnastjóra forvarna, lýðheilsu og félagsauðs stuðlar að því að sá rammi nýtist í hverfum Reykjavíkurborgar. Til þess þarf áfram skýra ábyrgð og svigrúm til að halda samstarfinu virku. Barn á ekki að þurfa að lenda í alvarlegri stöðu áður en kerfin fara að vinna saman. Ungmenni dagsins í dag eru leiðtogar framtíðarinnar (Lanskey, 2026). Við þurfum því ekki aðeins að spyrja hvernig við tryggjum öryggi þeirra í dag. Við þurfum líka að spyrja: Eru ákvarðanir okkar í dag að halda framtíð barnsins opinni? Höfundar eru verkefnastjórar forvarna, lýðheilsu og félagsauðs hjá Reykjavíkurborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun