Niðurrif hafið á Laugasól Lovísa Arnardóttir skrifar 7. október 2026 22:01 Endanleg hönnun nýs leikskóla liggur ekki fyrir. Vísir/Anton Brink Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist.
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir endanleg hönnun hússins né hvenær framkvæmdir geti hafist. Leikskólinn er í dag þriggja deilda leikskóli við Leirulæk og dvelja 45 börn á leikskólanum samtímis samkvæmt vef borgarinnar. Áður voru um hundrað börn á leikskólanum og sex deildir. Leikskólinn hefur verið í húsnæðisvanda um árabil en fyrst stóð til að endurgera húsið sem nú er verið að rífa. Þegar byrjað var að grafa frá húsinu árið 2024 kom í ljós að húsið, sem byggt var árið 1965, stóð ekki á sökklum og jarðvegurinn var sendinn og því ekki hæfur til burðar miðað við þær endurbætur sem áætlaðar voru. Leikskólinn var áður um hundrað barna leikskóli en tekur aðeins inn um helming þess í dag. Vísir/Anton Brink Borgarráð samþykkti svo í desember sama ár að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hætta framkvæmdum og segja upp verksamningi við verktaka um viðgerðir og endurbætur á leikskólanum. Þá var ákveðið að rífa bæði hús leikskólans og byggja nýjan. Börnin á einum stað Árin 2024 og 2025 voru börn leikskólans tímabundið á tveimur stöðum, í Safamýri og í öðru húsnæði leikskólans á sama reit, en frá hausti 2025 ár hafa þau einungis verið í öðru húsnæði skólans við Leirulæk, sem iðulega er kallað Lækjarborg eins og leikskólinn sem áður var rekinn þar, og færri börn tekin inn. Enn er starfsemi í hinni byggingu leikskólans. Vísir/Anton Brink Í svari frá Reykjavíkurborg um niðurrifið segir að í samræmi við tillögur um uppbyggingu leikskóla sem samþykktar voru í borgarstjórn í júní 2025 sé gert ráð fyrir að nýr leikskóli rísi á lóðinni. „Enn er starfsemi í Laugasól-Lækjarborg og því hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hvort eða hvenær það hús verður rifið,“ segir enn fremur í svarinu. Hagstæðar markaðsaðstæður Verktakafyrirtækið H2Orka ehf. sér um niðurrifið en tilboð þess hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir. Kostnaðaráætlun Reykjavíkurborgar hljóðaði upp á 71 milljón. Samþykkt var að rífa leikskólann í desember 2024. Hann hefur þó staðið tómur lengur. Vísir/Anton Brink Hvað varðar mun á kostnaðaráætlun og tilboði segir í svari borgarinnar að kostnaðaráætlanir séu unnar á grundvelli upplýsinga sem liggi fyrir á hverjum tíma og feli gjarnan í sér ákveðna varúð. „Tilboðið sem barst var mun lægra en kostnaðaráætlunin, sem bendir til að markaðsaðstæður hafi verið hagstæðar og samkeppni góð. Einnig má gera ráð fyrir að einstakir kostnaðarliðir í áætluninni hafi reynst of háir miðað við raunverulegt umfang verksins,“ segir í svarinu.
Leikskólar Reykjavík Skipulagsmál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Samþykkja að leikskólabyggingin verði rifin Borgarráð Reykjavíkurborg hefur samþykkt ósk umhverfis- og skipulagssviðs um að stöðva framkvæmdir við endurbætur á leikskólanum Laugasól við Leirulæk og heimild til að rífa húsið til að hægt sé að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni. 6. desember 2024 07:56 Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. 26. nóvember 2024 15:18 Starfsemi skert í tíu leik- eða grunnskólum í Reykjavík í vetur Í Reykjavík eru tíu leik- og grunnskólar að hluta eða alveg óstarfhæfir nú þegar skólastarf er að hefjast. Þar af er um að ræða níu leikskóla og einn grunnskóla, Hólabrekkuskóla. 17. ágúst 2024 23:40 Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Árleg gleðiganga fjögurra leik- og grunnskóla í Laugardal fór fram í dag í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks þann 17. maí. 16. maí 2025 19:39 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Samþykkja að leikskólabyggingin verði rifin Borgarráð Reykjavíkurborg hefur samþykkt ósk umhverfis- og skipulagssviðs um að stöðva framkvæmdir við endurbætur á leikskólanum Laugasól við Leirulæk og heimild til að rífa húsið til að hægt sé að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni. 6. desember 2024 07:56
Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. 26. nóvember 2024 15:18
Starfsemi skert í tíu leik- eða grunnskólum í Reykjavík í vetur Í Reykjavík eru tíu leik- og grunnskólar að hluta eða alveg óstarfhæfir nú þegar skólastarf er að hefjast. Þar af er um að ræða níu leikskóla og einn grunnskóla, Hólabrekkuskóla. 17. ágúst 2024 23:40
Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Árleg gleðiganga fjögurra leik- og grunnskóla í Laugardal fór fram í dag í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks þann 17. maí. 16. maí 2025 19:39