Innlent

Þétta sam­starfið í út­norðri

Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
„Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún á undir lok fundarins, sem var að öðru leyti haldinn á ensku.
„Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún á undir lok fundarins, sem var að öðru leyti haldinn á ensku. Vísir/Rafn

Ísland, Færeyjar og Grænland hyggjast efla viðskiptasamstarf sín á milli en leiðtogar vestnorrænu landanna sátu í dag hringborð með fjárfestum á Norður-Atlantshafi. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir landanna hittast gagngert í einu landanna til að funda.

Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Johannesen, lögmanns Færeyja, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis í dag.

Leiðtogar landanna þriggja hafa átt samráðsfund í dag en á blaðamannafundi greindu þeir frá því að þeir hefðu rætt við viðskiptaleiðtoga í von um að efla viðskipti og samstarf milli landanna. Fyrr um daginn höfðu þau einnig skoðað varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.

„Það eru mörg tækifæri fyrir okkur til þess að vaxa,“ sagði Kristrún á blaðamannafundinum í dag, sem haldinn var á ensku.

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, á blaðamannafundinum í dag.Vísir/Rafn

Þau fóru þó ekki í smáatriði um það hvernig þessu aukna samstarfi yrði háttað.

Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna hittast gagngert í einu landanna til að eiga samráð um sameiginleg hagsmunamál, að því er fram kom í tilkynningu frá stjórnarráðinu í gær.

Beinir sagði þó að þetta yrði aðeins fyrsta skipti af mörgum þar sem leiðtogar landanna þriggja myndu hittast saman.

„Ég held að þetta sé upphaf á meira og breiðara samstarfi milli landanna þriggja,“ sagði Færeyingurinn.

Beinir Johannesen, lögmaður Færeyja.Vísir/Rafn

Jens-Frederik tók undir og kvaðst spenntur fyrir frekara samstarfi. „Ég held að við höfum marga ókannaða möguleika,“ bætti Grænlendingurinn við.

Fundurinn er haldinn í framhaldi af miklum hræringum í málefnum Grænlands, þar sem nýlega var samið um nýjan varnarsamning við Bandaríkin í kjölfar hótana Bandaríkjaforseta en auk þess tilkynnti Evrópusambandið nýlega um fjárfestingarpakka fyrir Grænland.

Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar.Vísir/Rafn

„Ég held að samkomulagið sem við gerðum milli landanna þriggja sé mjög góður samningur fyrir okkur en einnig fyrir NATO og Evrópu,“ sagði Jens-Frederik þegar hann var spurður út í þríhliða samning Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur um varnarmál á Grænlandi.

Hann þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn sem Grænland hefur notið undanfarið ár auk þess sem Íslendingar hafa verið fylgjandi því að Grænland fái sinn eigin fulltrúa í Norðurlandaráði.

Undir lok fundarins spreytti forsætisráðherrann sig á dönsku.

„Vi tænkte at gøre det hele på dansk,“ sagði Kristrún þá og viðstaddir flissuðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×