Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 14:16 Arteta segir tapið munu hvetja Arsenal-menn áfram. Getty Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir tap liðsins fyrir PSG í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í vor sitja í sér. Hann er rétt að byrja með Arsenal-liðið sem hann gerði að Englandsmeisturum í vor og framlengdi samning sinn í Norður-Lundúnum í gær.
Arsenal tilkynnti um nýjan samning Arteta í gær sem hann framlengir til sumarsins 2030. Þar með fær hann verðlaun fyrir frábæran árangur en síðan hann tók við liðinu árið 2019 hefur það tekið stakkaskiptum og varð Englandsmeistari í vor. Í löngu viðtali við The Athletic fer hann um víðan völl er viðkemur starfi sínu og sýn á fótboltann. Það þurfti þó að snerta á vonbrigðunum sem fylgdu í vor eftir að enski meistaratitilinn var tryggður er Arsenal tapaði fyrir PSG í vítaspyrnukeppni í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger, þekkir að tapa slíkum leik og gerði það tuttugu árum fyrr í tapi fyrir Barcelona vorið 2006. Wenger sagði það meðal sárustu ósigra sinna og hann bæri þess enn „ör á hjarta sínu“. Arteta tekur undir það. „Ég ber enn örið, eins og Arsène segir. Ég er enn með þetta eitur í æðum mér. Það verður að vera þar áfram því það er þá sem maður lærir, og það verður líklega gríðarlegur drifkraftur fyrir mig og alla.“ Arsenal hefur leik á Englandi að nýju um helgina eftir langt landsleikjahlé. Sjötta umferð deildarinnar fer af stað með leik Arsenal og Leeds á Emirates-vellinum í hádeginu á laugardag. Leikurinn hefst klukkan 11:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Arsenal FC Enski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Sjá meira