Sport

Fattaði ekki að hann hefði fót­brotnað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ökklinn á Tyquan Thornton fór ansi illa.
Ökklinn á Tyquan Thornton fór ansi illa. vísir/getty

Óhugnanlegt atvik átti sér stað í leik Las Vegas Raiders og Kansas City Chiefs í NFL-deildinni um síðustu helgi.

Útherji Chiefs, Tyquan Thornton, ökklabrotnaði þá illa en það ótrúlega er að hann fattaði það ekki strax sjálfur.

Thornton greip langa sendingu frá Patrick Mahomes á glæsilegan hátt en var tæklaður í leiðinni. Hann stóð beint upp til að fagna gripinu og er hann var staðinn upp fann hann fyrir einhverju.

Hann leit þá niður og sá að vinstri fóturinn var í rústi. Sneri vel til vinstri. Hann var þá eðlilega fljótur að fá sér sæti aftur og ljóst að hann spilar ekki meira á þessari leiktíð.

Tveir útherjar Chiefs meiddust í leiknum og nú er rætt um að Chiefs ætli að fá Tyreek Hill aftur til sín. Sá er reyndar upptekinn í réttarsal þessi dægrin.

Atvikið var rætt í Lokasókninni á þriðjudaginn. Rétt er að vara við myndefninu sem fylgir fréttinni.

Klippa: Ljótt fótbrot hjá Thornton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×