Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar 8. október 2026 19:32 Ríkisstjórnin hefur lýst sig reiðubúna til að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% í stað 5,2%, ef kjarasamningar halda og aðrir leggja sitt af mörkum. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lýst yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027, í sama tilgangi. Dæmi eru einnig um að fyrirtæki hafi boðað tímabundna verðfrystingu eða takmörkun tiltekinna verðhækkana við 2,5%. Þessu ber að fagna, enda til marks um samstöðu um þau meginmarkmið síðustu kjarasamninga að halda verðbólgu og vaxtastigi í skefjum. Það skiptir máli fyrir samfélagið sem heild að kjarabætur launafólks hverfi ekki vegna gjaldskrárbreytinga og almennra verðhækkana. En við ættum ekki aðeins að spyrja hversu mikið verð hækkar, heldur hvers vegna. Í nýrri skýrslu starfshóps aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, Valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum, er fjallað um útbreitt „verðtryggingarhugarfar“, sem nauðsynlegt sé að bregðast við með afgerandi hætti ekki síst í þágu heimilanna í landinu. Nú er tækifæri til að takast á við það. Vísitalan segir ekki alla söguna Vísitala neysluverðs mælir almenna verðlagsþróun, ekki kostnað einstakra fyrirtækja. Þegar verð fylgir henni sjálfkrafa getur það hækkað þótt kostnaður hafi ekki aukist jafn mikið. Hærra olíuverð getur þannig, með áhrifum sínum á vísitöluna, hækkað verð þjónustu sem notar lítið eldsneyti. Þetta á líka við um húsaleigu. Samkvæmt skýrslunni voru um tveir þriðju leigusamninga í leiguskrá HMS tengdir vísitölu neysluverðs um mitt ár 2026. Langflestir þessara vísitölubundnu samninga gerðu ráð fyrir mánaðarlegum breytingum. Leiguverð hefur einnig áhrif á vísitöluna. Hagstofan notar leigugögn við mat á húsnæðislið vísitölu neysluverðs, bæði fyrir leigjendur og þá sem búa í eigin húsnæði. Hækkun vísitölunnar getur því hækkað vísitölutengda leigu samkvæmt samningsákvæðum og leiguhækkanir geta síðan haft áhrif á vísitöluna. Samkvæmt skýrslunni er óvíst hversu sterk þessi víxlverkun er. Leigusalar, fyrirtæki og opinberir kaupendur ættu að spyrja: Þarf samningurinn að fylgja vísitölunni eða er það orðið að venju? Má halda verði föstu lengur eða endurskoða það í stað sjálfvirkrar hækkunar? Dæmi eru um tímabundna frystingu leiguverðs á atvinnuhúsnæði. Slíkt frumkvæði sýnir að það er hægt að halda aftur af hækkunum, í samræmi við svigrúm og mismunandi rekstraraðstæður. Þegar næsta hækkun virðist óhjákvæmileg Þrálát verðbólga dregur úr trú fólks á stöðugt verðlag, sem getur leitt til þess að fyrirtæki og heimili taki ákvarðanir út frá þeirri forsendu einni að verð haldi áfram að hækka. Samkvæmt skýrslunni getur það gert Seðlabankanum erfiðara að ná verðbólgu niður og kallað á meira aðhald, með kostnaði fyrir fyrirtæki, heimili og hagkerfið í heild. Skýrslan bendir einnig á að mikil sjálfvirkni í verðbreytingum opinberra útgjalda, til dæmis í innkaupasamningum, geti þrengt svigrúm stjórnvalda til að stýra eigin eftirspurn og draga úr verðbólguþrýstingi. Byrðin á ekki öll að lenda á stýrivöxtunum. Að því marki sem sjálfvirkar verðbreytingar gera verðbólgu þrálátari getur minni sjálfvirkni létt undir með peningastefnunni. Minni hækkanir eru upphafið Minni sjálfvirkni tryggir þó enga tiltekna vaxtalækkun. Samkvæmt skýrslunni er áhrifaríkasta leiðin til að draga úr vísitölutengingum lág og stöðug verðbólga og traust á að hún haldist þannig. Markmiðið er ekki að banna allar tengingar. Þær geta auðveldað langtímasamninga og afnám þeirra getur birst í hærra upphafsverði, svo meta þarf hvert tilvik. Hvert fyrirtæki á áfram að taka sjálfstæðar verðákvarðanir. Þörf er á almennri vitundarvakningu, meðal kaupenda jafnt sem seljenda, svo verðbreytingarákvæði séu skoðuð af vandvirkni en ekki einfaldlega afrituð úr eldri samningum. Takmörkun hækkana nú og minni sjálfvirkni síðar eiga að styðja hvor aðra svo ná megi verðbólgu niður með sem minnstum kostnaði fyrir samfélagið. Fögnum frumkvæðinu, skoðum samningana og lítum ekki á næstu hækkun sem sjálfgefna. Höfundur er hagfræðingur BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leigumarkaður Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun