Handbolti

Bikarmeistararnir flugu á­fram og Aftur­elding vann í Kópa­voginum

Andri Broddason skrifar
Haukar komust örugglega áfram í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins.
Haukar komust örugglega áfram í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins. Anton/Vísir

Tveir leikir fóru fram í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í handbolta í kvöld. Afturelding vann HK örugglega í Kópavoginum 35-26 og Haukar unnu Stjörnuna örugglega í Hafnafirðinum 35-24.

HK byrjaði leikinn sterkt gegn Aftureldingu og komst í forystu leiksins en þegar fimmtán mínútur voru búnar af leiknum byrjaði að hægjast á heimamönnunum. Afturelding byrjaði því að ná forystu og í hálfleik var Afturelding með fimm marka forskot, 19-14.

Í seinni hálfleik hélt Afturelding áfram að auka forskot sitt og áttu heimamenn í HK í erfiðleikum með að minnka það. Leikurinn endaði með öruggum níu marka sigri Aftureldingar, 35-26.

Oscar Sven Leithoff Lykke, leikmaður Aftureldingar, var markahæsti leikmaður leiksins með 10 mörk og bar hann mestan sóknarþunga í liði Aftureldingar. Örn Alexandersson var markahæstur í liði HK en hann skoraði átta mörk.

Einar Baldvin Baldvinsson átti einnig flottan leik í marki Aftureldingar þar sem hann varði 14 skot sem var 41 prósent af öllum skotum sem hann fékk á sig. Afturelding er því komið áfram í 8-liða úrslitin.

Haukar halda áfram góðu flugi

Ríkjandi bikarmeistarar Hauka spiluðu fyrr í kvöld þar sem þeir tóku á móti Stjörnunni í 16-liða úrslitum. Strax í byrjun leiks átti Stjarnan átta mínútna kafla þar sem liðið skoraði ekki mark og voru Haukar komnir í níu marka forystu þegar aðeins fimmtán mínútur voru búnar.

Ástandið átti ekki eftir að batna hjá Stjörnunni þar sem það gekk erfiðlega fyrir liðið að minnka metin og voru Haukar að vinna 19-8 í hálfleik. Haukarnir héldu áfram góðu strike í seinni hálfleik og héldu 11 marka forystunni mestallan leikinn og því eru bikarmeistararnir komnir í 8-liða úrslitin.

Freyr Aronsson var markahæstur í leiknum en hann skoraði 10 mörk fyrir Hauka. Vörn Hauka spilaði frábærlega þar sem Grétar Ari Guðjónsson stóð sig vel í markinu og Skarphéðinn Ívar Einarsson spilaði einnig vel í vörninni.

Ísak Logi Einarsson var markahæstur í liði Stjörnunnar með sjö mörk en hann var aðeins með 54 prósent skotnýtingu.

Upplýsingar um markaskorara og stöðu leikjanna voru fengnar af hbstatz.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×