Erlent

Ætla að streyma af­töku í beinni

Samúel Karl Ólason skrifar
Pete Hegseth sagði í dag að gengið yrði úr skugga að fólk myndi geta horft á það þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana af aftökusveit í desember.
Pete Hegseth sagði í dag að gengið yrði úr skugga að fólk myndi geta horft á það þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana af aftökusveit í desember. AP

Fyrrverandi majór í bandaríska hernum verður tekinn af lífi með aftökusveit í desember. Pete Hegseth varnarmálaráðherra lýsti því yfir í kvöld að aftakan yrði opinber en ráðuneytið ætlar að streyma frá því þegar Nidal Malik Hasan verður skotinn til bana.

Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.

Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn til bana í Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009. Hann særði 32 til viðbótar áður en hann var særður af öðrum hermönnum.

Hasan var sálfræðingur fyrir herinn og gekk hann inn í heilsugæslustöð herstöðvarinnar þar sem fjölmargir hermenn biðu í röð eftir því að fá bólusetningar og læknisskoðun fyrir ferð til Afganistan. Þar kallaði hann „Allahu akbar“ eða „Guð er mikill“ og hóf skothríð á hermennina.

Við réttarhöldin gegn honum kom fram að hann hafði undirbúð árásina í nokkrar vikur. Hann hafði meðal annars farið á námskeið þar sem hann lærði að skipta hratt um magasín í skammbyssu sem hann keypti sérstaklega fyrir árásina.

Við réttarhöldin gegn honum sagðist hann vilja koma í veg fyrir að hermennirnir sem hann skaut færu til Afganistan og dræpu þar múslima.

Hegseth sagði frá því fyrr í vikunni að Donald Trump forseti hefði samþykkt beiðni hans um að Hasan yrði tekinn af lífi með aftökusveit. Aftakan mun fara fram þann 3. desember í Fort Hood.

Sjá einnig: Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum

Hasan er lamaður fyrir neðan mitti og notast við hjólastól.

Hegseth var spurður út í aftökuna um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln, þegar skipið kom til hafnar í San Diego, eftir að hafa tekið þátt í stríðinu gegn Íran.

Þá sagði ráðherrann að Hasan yrði skotinn til bana eins og réttlætt væri og fór hann hörðum orðum um Hasan sem öfgamann.

„Við munum ganga úr skugga um að fólk muni geta horft á það. Að þetta verði opinbert.“

Hegseth sagði það mikilvægt til að sýna fólki að árásir eins og sú sem Hasan gerði hefðu alvarlegar afleiðingar.

Eftir ummæli Hegseths höfðu fjölmiðlar vestanhafs samband við talsmenn varnarmálaráðuneytisins sem staðfestu að streymt yrði frá aftökunni. Frekari upplýsingar yrðu veittar síðar.

Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn frá því í seinni heimsstyrjöldinni sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit. Herinn tók síðast mann af lífi þann 13. apríl 1961. Þá var hermaður sem hét John Bennett hengdur.

Hegseth var svo spurður hvort að Hasan hefði lagt fram einhverskonar lokabeiðni eða reynt að hafa samband við Trump, svo hann vissi til.

„Mér er alveg sama. Við munum sjá hann þann 3. desember.“

AP hefur eftir sérfræðingum í lögum hersins að Hasan geti barist gegn aftöku með aftökusveit, með kröfu til dómara og að slíkt gæti tafið aftöku hans um langt skeið.


Tengdar fréttir

Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku

Christa Pike er vöknuð og getur tjáð sig en hún er enn á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tennessee misheppnaðist í síðustu viku. Lögmenn hennar segja enn óljóst hvort hún muni ná bata og segja þeir að hún standi frammi fyrir löngu bataferli, verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×