„Áttum bara erfitt með að stoppa Bandaríkjamanninn“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 8. október 2026 22:22 Steinar Kaldal telur liðið þurfa hrista skjálfann úr sér fyrir næsta leik. Vísir/Hulda Margrét Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, segir sína menn hafa átt í miklu basli með að stöðva Jamir Chaplin í 108-90 tapi gegn Keflavík í fyrstu umferð Bónus deildar karla í kvöld. „
Rosalega sveiflukennd frammistaða. Mér fannst við byrja þetta ágætlega, erum inni í leiknum. Það var einhver tíu stiga munur í hálfleik. Allar tölur þannig séð jafnar hjá okkur en við áttum bara erfitt með að stoppa Bandaríkjamanninn.“ „Keflavík spilaði bara ótrúlega vel og voru með flott flæði í leiknum og völtuðu bara yfir okkur þarna á tímabili.“ Aðspurður hvað hafi helst vantað upp á frammistöðuna nefndi han sjálfstraust og betra flæði í sóknarleiknum. „Meira sjálfstraust, meira swag, hreyfa boltann betur. Þegar við hreyfðum hann þá fengum við yfirleitt opin skot. Nýtingin datt svo mikið niður í seinni hálfleik og þá verður þetta stór munur og menn kannski fljótir að hengja haus.“ Steinar var skýr þegar hann var spurður út í frammistöðu erlendu leikmannana og telur að þeir þurfi að skila meira framlagi ef Ármann ætlar að ná árangri í vetur. „Ég þarf meira frá þeim, það er alveg ljóst. Ef við ætlum að eiga breik þá þurfa þeir að vera einhvers staðar yfir 50 stig samanlagt. Það er bara þannig og það var ekki þannig í kvöld.“ Ármanni hefur verið spáð neðsta sæti deildarinnar og falli fyrir tímabilið af sérfræðingum Sýnar Sport. „Við þekkjum það að vera spáð þarna niðri. Mér sýnist kollegar mínir í körfuboltanum líta á okkur eins og gaurana í Cool Runnings myndinni góðu. Þeir telja okkur ekki vera með nógu sleipan sleða til að ná rennsli eða eitthvað. Við þurfum bara að vinna í því að ná því og slípa okkur betur saman.“ Þrátt fyrir slaka frammistöðu og tap í kvöld hefur Steinar fulla trú á leikmannahópnum og að liðið geti sýnt betri frammistöðu í næstu leikjum. „Auðvitað hef ég trú á liðinu, þetta eru topp náungar. Það er góður mórall í hópnum, menn eru tilbúnir í þetta. Það var einhver skjálfti í mönnum í kvöld en við þurfum að hrista það úr okkur fyrir næsta leik.“
Ármann Bónus-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Dagskráin: Suðurnesjaslagur og Körfuboltakvöld „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Cristiano Ronaldo með þrennu Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Víkingar láta Einar Guðna fara Sjá meira