Bíó og sjónvarp

Elma seld til út­landa

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu.
Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu. Juliette Rowland

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glassriver.

Elma hefur þegar verið seld til Finnlands en sala þáttanna á fleiri mörkuðum hefst á MIPCOM í Cannes, stærstu kaupstefnu heims fyrir sjónvarpsefni, sem haldin verður dagana 12. til 15. október. Þar koma framleiðendur, dreifingaraðilar og fulltrúar sjónvarpsstöðva og streymisveitna saman til að kynna nýtt efni og semja um kaup og dreifingu þess.

„Við erum mjög ánægð með samstarfið við Mediawan. Það er eitt af öflugri dreifingarfyrirtækjum Evrópu og bindur miklar vonir við Elmu. Reynsla þeirra og þekking á erlendum mörkuðum skipta miklu máli þegar við kynnum þættina fyrir kaupendum,“ segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri og framleiðandi hjá Glassriver. 

Glassriver framleiðir Elmu í samstarfi við belgíska framleiðslufyrirtækið Lunanime og kemur finnska sjónvarpsstöðin MTV einnig að verkefninu. Þættirnir gerast á Akranesi, þangað sem lögreglukonan Elma snýr aftur á æskuslóðir eftir sambandsslit. Þegar kona finnst látin við vita í bænum hefst rannsókn sem leiðir í ljós gömul leyndarmál.

Katrín Björgvinsdóttir og Þóra Hilmarsdóttir leikstýra þáttunum. Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir er aðalhandritshöfundur og skrifar handritið ásamt Elísabetu Hall og Urði Egilsdóttur. 

Unnur Birna Backman fer með aðalhlutverkið og með önnur hlutverk fara Nikulás Hansen Daðason, Hjálmar Hjálmarsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Katla Njálsdóttir, Jörundur Ragnarsson og Sólveig Arnarsdóttir.

Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum:


Tengdar fréttir

Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust

Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust.

Unnur Birna verður Elma

Leikkonan og rísandi stjarnan Unnur Birna Bachman fer með hlutverk Elmu í samnefndri þáttaröð sem er væntanleg næsta vetur. Serían er byggð á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.