Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Rakel Sveinsdóttir skrifar 10. október 2026 10:00 Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, með bardagakisann Tóbías Tuma. Sem Pétur passar upp á að borði vel á morgnana, enda stendur Tóbías í nágrannaerjum þessi dægrin með tilheyrandi skakkaföllum. Vísir/Anton Brink Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, telur líklegt að hann sé í skemmtilegasta starfi í heimi. Sem þó er ekki hættulaust eins og góð saga frá Japan lýsir nokkuð vel.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna um sjö og er mættur í vinnuna milli átta og níu. Stundum fyrr ef dagurinn byrjar á fundi með sendiskrifstofunum í Asíu vegna tímamunarins.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Fyrsta morgunverkið er að kveikja á kaffivélinni og útbúa kaffibolla fyrir eiginkonuna. Næsta verkefni þessa dagana er að tékka á heimiliskettinum. Hann hefur átt í einhverjum nágrannaerjum undanfarna mánuði með tilheyrandi skakkaföllum svo ég passa upp á að gefa honum vel að borða, svo hann sé tilbúinn í átök dagsins. Dýralæknirinn hans segir að þetta muni ganga yfir og þeir félagar muni finna út úr þessu í fyllingu tímans. Ég er sem sagt með bardagakisa á heimilinu, Tóbías Tuma.“ Hvaða teikni- eða ævintýrapersóna lýsir þér best? „Forrest Gump. Ég hef einfaldlega verið í þannig störfum undanfarin tuttugu og fimm ár að ég er sífellt í einhverjum skrítnum aðstæðum sem venjulegt fólk lendir sem betur fer ekkert oft í. Mörgum sinnum á ári spyr ég mig „Hvernig lenti ég í þessu?“ Ég held því til dæmis fram að ég sé sá Íslendingur sem hafi mesta reynslu af því að ganga í humátt. Það er göngulag sem einkennist af því að elta ráðamenn í hæfilegri fjarlægð og vera við öllu búinn. Getur tekið á sig alls konar myndir, eftir aðstæðum hverju sinni. Í heimsókn forseta Íslands á heimssýninguna í Osaka í fyrra ráfaði ég aðeins úr humáttinni og vildi þannig til að ég kom fyrstur úr hópnum að norræna skálanum. Þangað höfðu hundruð Japana safnast saman til að fagna forseta Íslands. Þegar ég kem gangandi í þungum þönkum fagnar hópurinn óskaplega og veifar íslenska fánanum til að hylla meintan forseta. Daði Vigfússon, starfsmaður norræna skálans, stekkur til, bendir á mig og hrópar eins hátt og hann getur: „Not President, Not President“. Þetta sýnir háskann sem hægt er að lenda í.“ Pétur, sem á Íslandsmet í að ganga í humátt, segist búa yfir þeim hæfileikum að ná að bjarga sér þegar allt er við það að lenda í skrúfunni. Hann sé hvorki skipulagður í einkalífi né vinnu - þó betri í vinnu - það sem bjargi þar helst sé dagbókin og þolinmótt starfsfólk.Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er í skemmtilegasta starfi á Íslandi og í Evrópu. Og kannski öllum heiminum. Verkefnin eru óendanlega fjölbreytt og engir tveir dagar eins. Alls skipuleggur Íslandsstofa eitt hundrað viðburði erlendis á hverju ári með sex hundruð fyrirtækjum og haustin eru mjög annasöm. Enda er hlutverk okkar víðfeðmt þar sem við aðstoðum íslenska aðila og fyrirtæki á sviði orku, grænna lausna, hugvits, tækni, sjávarútvegs, matvælaiðnaðar, skapandi greina, lista og ferðaþjónustu við að efla útflutning og auka þannig hagsæld á Íslandi. Gott dæmi um verkefnin er til dæmis ferð sem hefst í næstu viku þar sem sendinefnd úr íslensku viðskiptalífi fer til Minneapolis í Bandaríkjunum á vegum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins og Íslandsstofu undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Tilgangurinn er að rækta viðskiptasambandið við þetta mikilvægasta viðskiptaland Íslands. Í undirbúningi er einnig ferð til Kína, þar sem íslensk fyrirtæki taka þátt í sjávarútvegssýningunni í Qingdao. Utanríkisráðherra mun einmitt heimsækja þá sýningu sem er afar mikilvægt fyrir fyrirtækin. Oft verða til árangursrík og hagfelld viðskipti fyrir íslenskar vörur og hugvit í kjölfar slíkra ferða. Þá tók ríkisstjórnin fyrr á árinu þá mikilvægu ákvörðun að verja sex hundruð og þrjátíu milljónum króna til markaðssetningar á Íslandi sem áfangastað fyrir ferðamenn. Undanfarna mánuði höfum við verið að vinna með þessa fjármuni og erum nú að vinna með erlendum sérfræðingum greiningar á því hvar við getum náð sem mestum árangri fyrir íslenska ferðaþjónustu og um leið Ísland. Þá skipuleggur Íslandsstofa og kemur að um hundrað og fimmtíu blaðamannaferðum á ári til landsins.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég er ekki skipulagður, hvorki í vinnu né einkalífi. Er þó aðeins skárri í vinnunni en utan hennar. Ég vinn það upp með afburðahæfileikum í að bjarga mér þegar allt virðist á leið í skrúfuna. En dagbókin er minn stóri bjargvættur í lífinu og sem betur fer er samstarfsfólk mitt meðvitað um þennan veikleika og sýnir mér skilning og þolinmæði.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Um ellefu, stundum seinna þegar fótboltaleikir fara í framlengingu, sérstaklega þegar Manchester United er að spila. Ekki þar fyrir að þessi árin sofnar maður jafnvel fyrr þegar einmitt mitt lið á í hlut...“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01 Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02 „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01 Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03 „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01 Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó. 3. október 2026 10:01
Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar. 26. september 2026 10:02
„Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01
Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03
„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01