Körfubolti

„Þessi seinni hálf­leikur var það besta sem við höfum gert hingað til”

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, sést hér á hliðarlínunni á Hlíðarenda í kvöld.
Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, sést hér á hliðarlínunni á Hlíðarenda í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var svekktur eftir naumt tap gegn Val, 87-84, í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Hann hrósaði þó sínu liði fyrir baráttuna í síðari hálfleik þegar Ármenningar náðu að snúa þrettán stiga mun í forystu.

„Ég er náttúrulega bara drullusvekktur sko.“

Ármann var enn án sigurs eftir fjórar umferðir en Steinar sá ýmislegt jákvætt í frammistöðu sinna manna á Hlíðarenda.

„Ég vil hrósa liðinu fyrir að koma til baka og taka alvöruleik hérna við Val á þeirra heimavelli.“

Steinar var ósáttur við frákastabaráttu liðsins í fyrri hálfleik og skilaboðin til leikmannanna í hléinu voru skýr.

„Þeir voru að slátra okkur í fráköstunum í fyrri hálfleik. Ég bað strákana um eitt verkefni og það var að vinna frákastabaráttuna. Það myndi skila okkur inn í leikinn aftur, sem að það gerði.“

Hann taldi meiri ákefð og baráttu hafa skilað sér í síðari hálfleik. Trú á sigur hefði ein og sér ekki verið nóg.

„Það þyrfti að fylgja því eftir með ákefð og baráttu. Það var ekki alveg nógu mikið í fyrri hálfleik en það kom seinna alveg. Þetta er voða einfalt oft.“

Ármenningar komust yfir snemma í fjórða leikhluta en náðu ekki að fylgja því eftir með sigri. Steinar taldi það hafa kostað sitt að þurfa að vinna upp forskot Vals.

„Við byrjum ekki nógu vel og við þurfum að koma okkur inn í leikinn og það tekur orku.“

„Ef við hefðum verið allan leikinn af sama krafti og í seinni hálfleik þá hefðum við líklega tekið þetta en Valur er með reynslumikið lið og þeir þarna klára þetta.“

Þrátt fyrir vonbrigðin taldi Steinar leikinn hafa verið skref í rétta átt.

„Klárlega. Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til.“

Honum fannst leikmenn hafa sýnt trú á verkefninu þótt á móti hefði blásið.

„Við höfum alltaf trú á þessu liði og við viljum að menn í liðinu hafi trú á okkur. Mér fannst það koma þarna í seinni hálfleik.”

Steinar taldi þó enn margt þurfa að bæta, sérstaklega í sóknarleiknum.

„Samt sé ég alveg ennþá ákveðna hluti sóknarlega þar sem við verðum staðir og getum leyst betur þarna bara kerfin okkar og flæði þar. Þannig að það er fullt sem við þurfum að bæta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×