Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. október 2026 12:00 Fleiri pabbahelgar gerist fimm árum eftir fyrstu seríuna, Pabbahelgar, sem sló í gegn árið 2019. Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim.
Fyrri þáttaröðin, Pabbahelgar, var sýnd á RÚV haustið 2019, sló í gegn hjá áhorfendum og hlaut Edduverðlaunin árið 2020 sem leikið sjónvarpsefni ársins. Þættirnir fjölluðu um Karen sem þurfti að takast á við skilnað eftir að upp komst um framhjáhald eiginmanns hennar, Matta. Þættirnir fönguðu hversdagslíf íslensku fjölskyldunnar með beittum húmor og einlægri sýn á mannleg samskipti. Nú snúa Karen og Matti aftur á skjáinn í Fleiri Pabbahelgum þar sem fimm ár eru liðin og margt hefur breyst. Karen hefur verið einstæð og kynnst stefnumótaheiminum í gegnum Tinder, með misjöfnum árangri. Eftir að hafa eytt síðustu árum í að sinna börnunum, takast á við fyrrverandi eiginmanninn og halda öllum boltum á lofti hefur hún ákveðið að setja sjálfa sig í fyrsta sæti. Það reynist þó hægara sagt en gert. Börnin eru orðin unglingar en þurfa enn á foreldrum sínum að halda. Karen þarf því að finna jafnvægi milli þess að vera móðir, fyrrverandi eiginkona og kona sem vill lifa lífinu á eigin forsendum. Matti hefur haldið áfram með sitt líf en er enn bundinn Karen í gegnum börnin og gömul samskiptamynstur reynast lífseig þar sem einföldustu hversdagsmál geta orðið að stórum ágreiningsefnum. Hér að neðan má sjá stiklu fyrir þáttaröðina: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson fara sem fyrr með hlutverk Karenar og Matta. Meðal annarra leikara eru Sólveig Guðmundsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Sigríður, Eyrún Friðriksdóttir og Hildigunnur Þráinsdóttir. Auk þess að fara með aðalhlutverkið þá leikstýrir Nanna Kristín þáttunum, er aðalframleiðandi þeirra og skrifar handritið ásamt Sólveigu Jónsdóttur og Erlu Skúladóttur.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Þorði ekki að segja hug sinn Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og leikstjóri, segir frá glímunni við félagskvíða og misnotkun á áfengi. "Áður en ég skoraði kvíðann og drykkjuna á hólm þorði ég ekki að hafa rödd.“ 14. september 2019 08:45 Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira
Þorði ekki að segja hug sinn Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og leikstjóri, segir frá glímunni við félagskvíða og misnotkun á áfengi. "Áður en ég skoraði kvíðann og drykkjuna á hólm þorði ég ekki að hafa rödd.“ 14. september 2019 08:45