Körfubolti

Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðar­legur kraftur í henni“

Aron Guðmundsson skrifar
Helena Rafnsdóttir í baráttunni við Söru Líf Boama í leik Njarðvíkur og Vals á dögunum
Helena Rafnsdóttir í baráttunni við Söru Líf Boama í leik Njarðvíkur og Vals á dögunum Anton Brink/Vísir

Helena Rafnsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, hefur heilla sérfræðinga Körfuboltakvölds í upphafi tímabils í Bónus deildinni. 

Helena var frábær í sigri Njarðvíkur gegn KR fyrr í vikunni þar sem hún var öflug á báðum endum vallarins. Hún setti meðal annars niður 21 stig og var með frábæra nýtingu.

„Hún var bara stórkostleg bæði í sókn og vörn,“ sagði Bryndís Guðmundsdóttir, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds. Það hafi einfaldlega allt farið niður hjá Helenu í gær. „Mér finnst hún hafa vaxið sóknarlega frá því undir lok síðasta tímabils. Ef ég reyni að setja mig í hennar spor þá finnst mér hún hafa hætt að spá í sóknarleiknum sínum og fór bara algjörlega að spá í varnarleiknum. Mér finnst það bara hafa hjálpað henni“

Klippa: Allt annað að sjá Helenu

Pálína Gunnlaugsdóttir tók undir með Bryndísi.

„Ég held að þetta hafi algjörlega verið lykillinn. Við sáum Helenu í miklu og stóru varnarhlutverki í fyrra. Hún var að dekka bestu hestana í hinum liðunum og það mæddi ekki eins mikið á henni sóknarlega og mögulega var hún kannski að þvinga skotum og öðru áður. En að horfa á Helenu Rafnsdóttur í dag, mér finnst bara gríðarlegur kraftur í henni. Hún er sterk og fer sterkt á körfuna.“

Umræðuna úr Körfuboltakvöldi um Helenu Rafnsdóttur og frammistöðu hennar má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×