Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. október 2026 13:58 Höfuðstöðvar bandarísku streymisveitunnar í Los Angeles. Vísir/Getty Bandaríska streymisveitan Netflix hyggst segja upp þúsund starfsmönnum sínum eða sex prósent af öllu starfsfólki. Um er að ræða mestu breytingar hjá fyrirtækinu síðan árið 2022 en ástæðan er rakin til áhorfstala sem benda til þess að áhorf hafi staðnað hjá fyrirtækinu á undanförnum mánuðum.
Í umfjöllun Hollywood Reporter segir að Ted Sarandos og Greg Peters forstjórar Netflix hafi tilkynnt starfsfólki um aðgerðirnar í tölvupósti í morgun. Þar segir að það verði einkum starfsfólk á sviði vöru- og tækniþróunar sem muni finna fyrir niðurskurðinum auk starfsfólks í lögfræði- og mannauðsteymi fyrirtækisins. „Markmið okkar – að skemmta heiminum – er metnaðarfullt og til að ná því þurfum við að sýna aga í því hvar við forgangsröðum starfsfólki okkar og fjármunum,“ skrifuðu forstjórarnir í tölvupóstinum sem bandaríski miðillinn hefur undir höndum. „Rekstur okkar er sterkur og í vexti og við erum enn á góðri leið með að standast spá okkar fyrir árið í heild. Við munum áfram fjárfesta af krafti á sviðum sem hafa mikil áhrif til að bæta þjónustu okkar og efla enn frekar vöxt og nýsköpun. Það krefst þess að við tökum markvissar ákvarðanir í öllum rekstrinum svo við getum áfram skilað árangri fyrir áskrifendur okkar, samstarfsaðila, starfsfólk og fjárfesta.“ The Hollywood Reporter lætur þess getið að Netflix skili áfram miklum hagnaði og sé enn stærsta streymisveita í heimi. Áhorfstölur hafi hinsvegar staðið í stað undanfarna mánuði sem sé vont fyrir fyrirtækið sem hafi lagt aukna áherslu á auglýsingasölu. Fram kemur að streymisveitan muni birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung í næstu viku.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Streymisveitur Netflix Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira