Skoðun

Mikil­vægi sam­starfs á norður­slóðum

Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Í tilefni að því að Arctic Circle, Hringborð norðurslóða, fór fram í síðustu viku langar mig að draga enn og aftur athygli að þessu mikilvæga svæði.

Norðurslóðir eru að mínu mati eitt af mikilvægustu svæðum heims m.a. þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum og alþjóðasamvinnu.

Hagsmunir Íslands samkvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur samþykkt um málefni norðurslóða eru skýrir: það er að tryggja frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun á svæðinu og að við berum virðingu fyrir alþjóðalögum og réttindum þeirra sem þar búa.

Á norðurslóðum sjást áhrif loftslagsbreytinga betur en víða annars staðar. Bráðnun íss, breytingar á lífríki og aukin umsvif manna kalla á öflugt alþjóðlegt samstarf. Í því samhengi er rétt að vekja athygli á að Ísland leggur mikla áherslu á mikilvægi vísindarannsókna á svæðinu, náttúruvernd og ábyrga nýtingu auðlinda. En verndun umhverfisins er ekki aðeins loftslagsmál heldur einnig grundvallaratriði í langtímaöryggi svæðisins.

Áherslan á öryggis- og varnamál á svæðinu hefur aukist. Aukin spenna í alþjóðamálum og hernaðarlegir hagsmunir stórvelda hafa m.a. aukið umræðu um að efla þurfi viðbúnað, eftirlit, leit og björgun og vernd mikilvægra innviða á norðurslóðum.

Ísland byggir öryggi sitt á alþjóðasamstarfi, meðal annars innan NATO og við leggjum mikla áherslu á að norðurslóðir verði áfram svæði friðar, samtals og samvinnu.

Arctic Circle-ráðstefnan, Hringborð norðurslóða, í Hörpu í síðustu viku undirstrikaði einmitt þessi tengsl. Þar var fjallað um loftslagsvánna, vaxandi alþjóðlega spennu og mikilvægi þess að rödd frumbyggja heyrist í ákvörðunum um framtíð svæðisins. Þekking þeirra, menning og réttindi verða að vera órjúfanlegur hluti af allri stefnumótun.

Eins og ég hef áður nefnt í ræðum og greinum þá verður framtíð norðurslóða að mínu mati best tryggð með samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar og formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar um málefni norðurslóða.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×