Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar 17. október 2026 21:00 Á árunum 2018–2020 sneri Landsréttur sakfellingu héraðsdóms í sýknu í tíu kynferðisbrotamálum, en sýknu í sakfellingu í aðeins einu. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Tölurnar segja ekki alla söguna, en vekja spurningar: Hvers vegna er svo mikill munur á því í hvora átt niðurstöðum er snúið? Hefur þróunin haldið áfram? Og hafa áhrif kynbundinna staðalmynda á sönnunarmat dómstóla verið rannsökuð? Þessar spurningar verða sérstaklega áleitnar eftir dóm Landsréttar 15. október í máli nr. 767/2025. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði sakfellt mann fyrir nauðgun og dæmt hann í fimm ára fangelsi. Tveir dómarar Landsréttar sýknuðu hann, en Ingibjörg Þorsteinsdóttir skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta sakfellinguna. Það sem vekur athygli er ekki aðeins niðurstaðan, heldur hvernig meirihlutinn metur samþykki og viðbrögð konunnar. Árið 2018 var 194. gr. almennra hegningarlaga breytt þannig að skortur á samþykki varð þungamiðja nauðgunarákvæðisins. Samþykki þarf að vera frjálst og tjáð með orðum eða annarri ótvíræðri tjáningu. Ekki verður gerð krafa um mótmæli eða mótspyrnu og athafnaleysi jafngildir ekki samþykki. Konan hafði samþykkt að prófa ákveðna hörku í kynlífi, meðal annars högg og kyrkingartök, og aðilar höfðu komið sér saman um öryggisorð. En samþykki fyrir einhverju er ekki samþykki fyrir öllu. Samþykki fyrir höggi er ekki sjálfkrafa samþykki fyrir ítrekuðum barsmíðum, né samþykki fyrir kyrkingartaki leyfi til að þrengja að öndun svo viðkomandi geti ekki andað. Skortur á skýrum takmörkunum er ekki það sama og ótakmarkað samþykki. Í dómi Hæstaréttar nr. 46/2022, frá 22. febrúar 2023, var áréttað að fyrri reynsla af harkalegu kynlífi og skortur á mótmælum nægðu ekki til að ganga út frá samþykki. Hæstiréttur lagði jafnframt áherslu á að því meiri líkamsmeiðingum sem beitt er, þeim mun ríkari kröfur verði að gera til ótvíræðs samþykkis fyrir fram. Vissulega hafði konan í Landsréttarmálinu samþykkt ákveðna hörku fyrir fram, ólíkt aðstæðum í Hæstaréttarmálinu. En það svarar ekki lykilspurningunni: Náði samþykkið til þess ofbeldis sem raunverulega var beitt? Hér skiptir líka máli að greina á milli þess að afturkalla samþykki og þess að hafa aldrei samþykkt tiltekna háttsemi. Það er ekki hægt að afturkalla samþykki sem aldrei var veitt. Öryggisorð er leið til að koma mörkum á framfæri, ekki heimild til ótakmarkaðs ofbeldis þar til orðið er sagt. Konan lýsti því að hafa reynt að losa hendur ákærða af hálsi sínum þegar hún átti erfitt með að anda. Hún sagðist hafa notað öryggisorðið einu sinni, en að öðru leyti frosið af hræðslu. Í forsendum meirihlutans er talið skjóta skökku við að hún hafi getað sagt orðið einu sinni en ekki oftar. Hvers vegna? Manneskja getur náð að tjá sig á einu augnabliki en verið ófær um það á því næsta. Að frjósa er þekkt viðbragð við ógn, ekki samþykki. Til sakfellingar þarf að sanna að ásetningur ákærða hafi náð til skorts á samþykki. En ásetningur getur líka falist í því að gera sér grein fyrir raunverulegum möguleika á að samþykki skorti og láta sig það í léttu rúmi liggja. Því vaknar spurningin: Ef ákærði varð var við tilraun konunnar til að losa hendur hans af hálsi sínum, hvaða þýðingu hafði það fyrir mat á ásetningi? Og hvaða ályktanir mátti draga af því að hún þurfti að nota öryggisorð þegar hún átti erfitt með að anda? Læknisfræðileg gögn sýndu verulega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og heyrnarskerðingu. Áverkarnir sanna ekki einir og sér skort á samþykki eða ásetning, en þeir skipta máli við mat á umfangi ofbeldisins og því hvort það hafi rúmast innan samþykkisins. Ingibjörg Þorsteinsdóttir taldi í sératkvæði sínu að samþykkið hefði ekki náð til þess ofbeldis sem gögnin sýndu og lagði annað mat á framburð og viðbrögð konunnar. Við höfum breytt lögunum og viðurkennt að þolendur geti frosið af hræðslu. En hafa þessar meginreglur skilað sér nægilega vel í sönnunarmatinu? Þegar það vekur tortryggni að brotaþoli hafi ekki mótmælt oftar, er ástæða til að spyrja hvort gamalgrónar hugmyndir um „rétt“ viðbrögð þolenda hafi enn áhrif. Dómstólar starfa ekki utan samfélagsins, og þess vegna þarf að rannsaka hvort kynbundnar staðalmyndir móti mat á trúverðugleika, samþykki og ásetningi. Sönnunarkröfur í sakamálum eiga að vera ríkar. En þær mega ekki í framkvæmd verða að kröfu um að brotaþoli bregðist við ofbeldi á fyrir fram ákveðinn hátt. Gagnrýni á dóma er ekki árás á sjálfstæði dómstóla, heldur hluti af réttarríkinu. Hvenær hættum við að spyrja hvers vegna brotaþoli gerði ekki meira og förum að spyrja hvort gerandi hafi haft skýrt samþykki fyrir því sem hann gerði? Samþykki fyrir einhverju er ekki samþykki fyrir öllu. Þögn er ekki samþykki. Og það að frjósa af hræðslu er ekki samþykki. Ef samþykki á að vera grundvöllur kynfrelsis verður það að hafa raunverulegt vægi þegar reynir á, annars færist ábyrgðin á að stöðva ofbeldi aftur yfir á þann sem fyrir því verður. Höfundur er meistaranemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun