Sport

Dag­skráin í dag: Breiða­blik getur tryggt sér Ís­lands­meistara­titilinn

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Breiðabliks fyrr á tímabilinu 
Frá leik Breiðabliks fyrr á tímabilinu  Guðmundur/Vísir

Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag. Úrslitin gætu ráðist í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild kvenna. 

Fyrsta beina útsending dagsins hefst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport Viaplay þar sem að Glódís Perla Viggósdóttir mætir til leiks með Bayern Munchen gegn Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Klukkan korter í fimm hefjum við síðan beina útsendingu frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks þar sem að Breiðabliki nægir stig til þess að verja Íslandsmeistaratitil sinn í Bestu deild kvenna. 

Klukkan sjö hefst svo eini leikur kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þar sem að Tottenham tekur á móti nýliðum Coventry City í beinni útsendingu á Sýn Sport. 

Á sama tíma hefjast Bestu mörkin á Sýn Sport Ísland 2 sem og bein útsending frá leik Fram og ÍA í Bestu deild karla á Sýn Sport Ísland. Að þeim leik loknum tekur Stúkan við. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×