Innlent

Bæjar­stjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“

Kjartan Kjartansson skrifar
Mynd sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, (t.v.) birti í tengslum við óeirðirnar í Frakkland virðist í raun frá Svíþjóð.
Mynd sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, (t.v.) birti í tengslum við óeirðirnar í Frakkland virðist í raun frá Svíþjóð. Vísir

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, „valda skaða“. Ummælin lét hann falla í tengslum við mótmæla- og óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland.

Óeirðir blossuðu upp í Frakklandi um helgina þar sem óeirðaseggir fóru ránshendi um verslanir og lögðu eld að byggingum og bílum. Þær komu í kjölfar þriggja vikna af mótmælum sem hófust hjá námsmönnum sem andæfðu fjársvelti í menntakerfinu. Verkalýðsfélög slógust síðan í för með námsmönnum og mótmæltu dýrtíð og niðurskurði stjórnvalda.

Atburðirnir hafa verið vatn á myllu fjarhægriflokka í Evrópu sem hafa stimplað mótmælin sem kynþáttaóeirðir innflytjenda. Fylgismenn þeirra hafa meðal annars deilt gervigreindarfölsuðum myndum sem eiga að sýna innflytjendur með skrílslæti. 

Einnig hefur myndum af innflytjendum verið deilt í samhengi við atburðina í Frakklandi sem tengjast þeim þó ekki á nokkurn hátt. 

Elliði deildi þannig mynd af hópi karlmanna sem virðist af arabískum eða afrískum uppruna með orðunum „Hér má sjá nemendafélag framhalsskóla [svo] í Frakklandi kalla eftir betri aðstöðu í skólanum sínum, .....eða hvað?“ í færslu á samfélagsmiðli. 

Skjáskot af færslu Elliða Vignisson.

Myndin virðist þó ekki frá Frakklandi heldur Svíþjóð og tengjat ekki óeirðunum um helgina. Myndaleit bendir til þess að myndin hafi birst á sænskum vefmiðli fyrr á þessu ári áður en henni var svo víða deilt á samfélagsmiðlum síðustu daga.

Eldur Smári Kristinsson, frambjóðandi Lýðræðisflokksins í síðustu þingkosningum, deildi sömu mynd með orðunum „frönsk skólabörn að mótmæla“ á öðrum samfélagsmiðli í fyrradag.

Afleiðing af stefnu þjóðkirkjuprests

Þegar Bjarni Karlsson, prestur, gagnrýndi Elliða fyrir að að nota gamla mynd frá öðru landi, sagðist Elliði vita að myndin væri ekki frá Frakklandi en beindi ábyrgðinni að Bjarna. Atburðirnir í Frakklandi væri afleiðing stefnu Bjarna og skoðanasystkina hans.

„Ég veit að fyrir ykkur vakir ekkert illt en það gerir afleiðingarnar af þessu ekki bærilegri. Óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, er að valda skaða,“ skrifaði bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins.

Sakaði Elliði Bjarna og aðra einnig um að hafa útvatnað hugtakið „rasisti“ og notað það um alla sem væru þeim ekki sammála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×