Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. október 2026 07:00 Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðingur, og Stefán Hauser Magnússon, rafiðnfræðingur, giftu sig með pomp og prakt á sveitasetri í Suður-Frakklandi. Morgane Cappeau „Við áttum alltaf von á því að þetta yrðu mjög fallegir og skemmtilegir dagar með fólkinu okkar en okkur óraði samt ekki fyrir því hversu góður andi myndi raunverulega skapast. Gleðin og ástin í loftinu var næstum því áþreifanleg,“ segja hjónin Kristín Hulda Gísladóttir og Stefán Hauser Magnússon. Þau giftu sig með pomp og prakt í Suður-Frakklandi í haust í uppgerðu sveitasetri frá 17. öld.
Kristín Hulda starfar sem sálfræðingur og Stefán sem rafiðnfræðingur en þau eru bæði 31 árs og hafa verið saman í rúm tvö ár. Kristín ræddi við blaðamann um stóra daginn. Það var mikið stuð í brúðkaupi Kristínar Huldu og Stefáns og Páll Óskar hélt uppi sturluðu dansgólfi.Morgane Cappeau Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við trúlofuðum okkur í september 2025. Við vorum á nokkurra daga göngu um Verdon-gljúfrin í Suður-Frakklandi og Stefán fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds göngunnar. Við lögðum seint af stað þennan dag og vorum því alveg ein á toppnum í ótrúlega fallegu umhverfi. Við höfðum nú þegar rætt brúðkaup töluvert og ég vissi í raun að það væri von á bónorði þetta sumarið. Ég hafði hugsað með mér að það væri fullkomið ef hann myndi biðja mín á þessum stað en vildi ekki gera mér væntingar um það. Við Stefán erum svo heppin að vera einstaklega samstíga og því kom það alls ekki á óvart en það var samt rosalega gaman að hann hafi líka verið búinn að sjá fyrir sér að þessi fjallganga væri tilvalin fyrir bónorðið. Hjónin eru einstaklega samstíga.Morgane Cappeau Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við fórum á fullt í skipulagningu um leið og við vorum trúlofuð og tók skipulagið því um það bil ár. Hjúin byrjuðu að skipuleggja brúðkaup beint eftir trúlofun.Morgane Cappeau Hvar hélduð þið brúðkaupið og var erfitt að ákveða staðsetninguna? Við giftum okkur á Domaine du Grand Lauron sem er uppgert sveitasetur frá 17. öld í smábænum Cadenet í Suður-Frakklandi. Við ákváðum snemma að gifta okkur erlendis, bróðir Stefáns gifti sig á Kýpur og Stefán var eftir það alveg sannfærður um að áfangastaðabrúðkaup væru málið. Stefán er líka bandarísk-íslenskur og á fjölskyldu út um allan heim þannig að þetta var alltaf að fara að vera ferðalag fyrir stóran hluta gesta. Við erum ekki búin að vera jafn lengi saman og Íslendingar eru vanalega þegar þeir gifta sig og því hafa vinir okkar og fjölskyldur ekki fengið þennan klassíska áratug eða meira til að kynnast. Við sáum strax að brúðkaup erlendis sem spannaði nokkra daga myndi veita okkur frábært tækifæri til að kynna alla betur og við lögðum því mjög mikla áherslu á að sameina fólkið okkar bæði í aðdraganda brúðkaupsins og meðan á því stóð. Við höldum bæði mikið upp á Suður-Frakkland, höfum ferðast mikið þangað og vorum strax sammála um að brúðkaupið yrði þar. Ég eyddi sirka mánuði af netvafri í að finna staði sem kæmu til greina og við lögðum í fyrstu rosalega áherslu á að gestir þyrftu ekki að keyra langt eftir flugið. Við vorum næstum því búin að bóka kastala mjög nálægt Nice þegar við föttuðum að okkur langaði miklu meira að sýna fólkinu okkar suðurfrönsku sveitina, nær fjöllunum og fallegu náttúrunni sem við elskum. Þá lagðist ég aftur yfir þetta og fann á endanum þetta ótrúlega fallega setur, á risastórri lóð með ógrynni af gróðri, vatni og dýrðlegri náttúru. Setrið var miklu meira í okkar anda en kastali og ómetanlegt að fólkið okkar hafi fengið að upplifa okkar uppáhalds hluta af Suður-Frakklandi. Staðsetningin var draumkennd.Morgane Cappeau Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Stórkostlegur! Við byrjuðum daginn snemma, í morgunmat með þeim vinum og fjölskyldu sem gistu á setrinu. Þar fórum við yfir allt sem þurfti að gera yfir daginn og úthlutuðum verkefnum. Svo tók við þétt dagskrá þar sem við fórum í gegnum prufukeyrslu á athöfninni og veislunni með þeim sem þar höfðu hlutverk á meðan okkar besta fólk sá um að skreyta hátt og lágt, raða stólum, taka á móti hljóðmanni, blómum og allt hitt sem þurfti að huga að. Ég var svo rifin frá skreytingum og skipulagi í kringum hádegi og við tók lengsta „gera mig til“ stund ævi minnar. Hjördís Ásta, ein af mínum elstu og bestu vinkonum, rifjaði upp gamla takta sem ein færasta MUA, eða förðunarfræðingur, landsins en hún starfar í dag sem læknir. Þórdís Þorkelsdóttir, önnur af mínum elstu og bestu vinkonum, sá um að gera hárið á mér fínt. Hún er ekki hárgreiðslukona heldur einmitt líka læknir en hún er með frábært auga fyrir því hvað er fallegt og er sjálf alltaf með flott hár. Glam-teymið mitt var því líka læknateymi og ég var í mjög öruggum höndum á allan hátt! Stelpurnar sem gistu á setrinu bættust við seinna og gerðu sig til í kringum mig. Strákarnir voru aðeins lengur að við stúss og skipulag en færðu sig svo í eitt af stærri herbergjunum þar sem þeir og Stefán gerðu sig til (lesist: skiptu um föt og drukku bjór). Athöfnin fór fram seinni partinn, uppi við stórt og fallegt vatn á svæðinu þar sem vinir okkar höfðu raðað stólum og eytt óratíma í að binda á þá slaufur. Athöfnin var ótrúlega falleg og vel heppnuð. Lauren, mamma Stefáns, var blómastelpan okkar en við gáfum því hlutverki aðeins meira pláss en vanalega því hún hafði líka hjálpað okkur að velja blómin, panta þau og staðsetja á brúðkaupsdaginn. Hún starfaði lengst af sem ballerína og tók nokkur spor á meðan hún stráði blómablöðum niður altarið. Vildís móðir Kristínar gekk með hana niður altarið og Steinn bróðir Stefáns gaf þau saman.Morgane Cappeau Ég gekk niður altarið með mömmu minni, Vildísi, sem var mjög hjartnæmt því við erum bara tvær í okkar kjarnafjölskyldu og mjög nánar. Steinn, bróðir Stefáns, gaf okkur saman en hann stóð sig einstaklega vel og okkur þótti svo vænt um að hafa hann í þessu hlutverki. Anna Róshildur, tónlistarkona og vinkona okkar, spilaði og söng af undurfagurri snilld í athöfninni en tónlistin hennar er algjörlega draumkennd og passaði vel í þessu íðilfagra umhverfi. Anna Róshildur, tónlistarkona og vinkona hjónanna, söng í athöfninni.Morgane Cappeau Eftir athöfn röltu gestirnir í garðinn upp við setrið og fengu sér fordrykk á meðan við fórum í stutta myndatöku með fjölskyldunum okkar. Við höfðum beðið alla um að senda okkur uppáhalds ástarlögin sín og feel-good lög og yfir fordrykknum fór í gang playlisti með lögunum sem var spilaður alveg fram að partíinu. Það var stórskemmtilegt og ótrúlega gaman þegar fólk heyrði „lagið sitt“ og lét okkur vita eða brást í dans! Við gerðum síðan mikið úr því þegar við vorum kynnt inn sem hjón en við földum okkur uppi á svölum, komum þaðan út og Stefán dró óvænt fram saxófón og spilaði undir við lagið sem við gengum út við. Það var algjör stemning og kom flestum skemmtilega á óvart enda ekki á vitorði margra í kringum okkur að Stefán hafi haldið sér við eftir að hafa æft á saxófón sem barn. Saxófón-leikur Stefáns sló í gegn.Morgane Cappeau Forréttirnir voru bornir fram á hlaðborðum á víð og dreif um garðinn og gestir gátu því nartað, fengið sér drykk, spjallað saman, setið í sólinni eða tekið myndir fram að borðhaldi. Stuttu áður en borðhald hófst þá fórum við í stórskemmtilegan franskan leik sem kallast Jeu de Ruban og er franska útgáfan af því að kasta brúðarvendinum. Allir einhleypir gestir gripu um endann á löngum satínborða og hinn endinn var fastur við blómvönd. Svo gengu þau í hringi í kringum okkur Stefán, ég hélt á vendinum og Stefán klippti á borðana, einn af öðrum og án þess að horfa, þar til það var bara einn borði eftir og vöndurinn fór til þess sem hélt í hann. Leikurinn sló í gegn.Morgane Cappeau Við borðuðum kvöldmat á milli tveggja húsa sem búið er að strengja ljósaseríur á milli og skapa ótrúlega fallegt svæði fyrir borðhald. Samhliða kvöldmatnum voru fluttar ræður og atriði og eftir mat skárum við brúðhjónin kökuna og gengum svo á milli borða yfir desertnum og skenktum kampavíni í glös gesta. Vinir okkar, Bryndís og Róbert Leó, leiddu gestina inn í danssalinn í kóngalínu á meðan við skutumst í burtu og skiptum yfir í partígalla. Við vorum síðan kynnt inn í salinn og náðum að koma gestum rækilega á óvart þegar sjálfur Páll Óskar var kynntur inn á eftir okkur. Hann söng lagið „Ást við fyrstu sýn“ við fyrsta dans okkar hjóna. Palli kom gestum rækilega á óvart.Morgane Cappeau Þegar leið á lagið buðum við öðrum gestum að bætast við á dansgólfið en við höfðum áður haldið einkadanstíma í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar fyrir gesti til að rifja upp valssporin. Svo tók við besta Pallaball lífs okkar! Það var algjörlega rugluð og súrrealísk upplifun að öskursyngja öll okkar uppáhalds Pallalög umkringd vinum og fjölskyldu og við munum lifa á því lengi. Þegar Páll Óskar fór tóku vinir okkar Helga Lára og Benjamín Þorlákur yfir á DJ-græjunum og héldu partíinu gangandi til þrjú um nótt! Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið? Við héldum pizzupartí til að bjóða fólk velkomið kvöldið fyrir brúðkaupið og hrista hópinn saman. Við báðum gesti um að einkenna sig með ákveðnum litum þetta kvöld, eftir því hvort þeir tilheyrðu vinum eða fjölskyldu brúðarinnar eða brúðgumans. Það var mjög skemmtilegt og bjó til góðan ísbrjót. Ég hafði sett saman myndband með alls konar skotum úr heimilisvídjóum frá því að pabbi minn var á lífi og við spiluðum það þetta kvöld. Okkur þótti mjög vænt um að geta heiðrað hann með þessum hætti og það setti vel tóninn fyrir einlægnina og ástina sem einkenndu allt brúðkaupið. Síðan héldu hjónin Alexandra Sif og Björn Jón, sem eru bestu vinir okkar til margra ára og fólkið sem kynnti okkur hvort fyrir öðru, mega skemmtilegt pub quiz og gestum var skipað í lið þannig að vinum og fjölskyldu var blandað saman. Líf og fjör í pizzapartíinu!Morgane Cappeau Konurnar í stórfjölskyldunni minni hafa það fyrir hefð í brúðkaupum að syngja lagið Chapel Of Love með The Dixie Cups til brúðgumans og í lok pizzupartísins sungu þær til Stefáns, sem sló í gegn! Daginn eftir brúðkaupið héldum við dögurð til að geta kvatt alla almennilega og þakkað fyrir okkur. Eina atriðið þann dag var mjög löng þakkarræða frá okkur. Eftir dögurðinn urðu flestir vinir okkar eftir og úr varð óvænt og ótrúlega skemmtilegt sundlaugarpartí þar sem við gerðum heiðarlega tilraun til að klára afganginn af bjórnum. Voruð þið sammála í skipulaginu? Já. Við erum almennt sammála og lendum sjaldan í því að annað okkar fái hugmynd sem hinu líst ekki vel á. Það kom sér rosalega vel við að plana svona stóran viðburð. Skipulagið flæddi einstaklega vel hjá Kristínu og Stefáni enda eru þau sjaldan ósammála.Morgane Cappeau Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu? Við skipulögðum brúðkaupið sjálf, án þess að ráða brúðkaupsskipuleggjanda eða wedding planner. Við vildum hafa brúðkaupið persónulegt, einlægt og í okkar stíl á alla kanta þannig að það kom aldrei annað til greina en að sjá um allar ákvarðanir sjálf. Það var því mikilvægast fyrir okkur að dreifa skipulagsálaginu vel svo þetta væri raunhæft samhliða vinnu og öðru. Við vorum með stóran tjekklista fyrir hvern einasta mánuð allt árið fyrir brúðkaupið og gáfum okkur tíma í hverri viku til að haka í eitthvað af listanum. Þar fyrir utan lögðum við mesta áherslu á upplifun gesta. Við vorum alltaf að spyrja okkur hvað væri skemmtilegast, þægilegast eða mest næs fyrir gestina okkar og létum það ráða för. Þegar við vorum komin af stað í skipulaginu fundum við líka sterkt fyrir því hvað brúðkaupsiðnaðurinn reynir mikið að sannfæra fólk um að ótrúlegustu hlutir séu nauðsynlegir, hvort sem það eru flugeldar eða einnota inniskór. Við vorum því alltaf með það á bak við eyrað að láta brúðkaups-algorithmann ekki leiða okkur í einhverja vitleysu heldur vera meðvituð um hvað okkur þætti raunverulega mikilvægt og hvað hentaði okkar brúðkaupi. Hjónin létu algorythmann aldrei taka yfir skipulagið og voru samkvæm sér.Morgane Cappeau Hvaðan sóttuð þið innblástur? Úr öllum áttum! Þar ber kannski helst að nefna öll frábæru brúðkaupin sem við höfum farið í, samtöl við vini og fjölskyldu, endalausan netvafur og það sem okkur finnst almennt fallegt og skemmtilegt. Vinir, fjölskylda og önnur brúðkaup voru mikill innblástur fyrir hjónin.Morgane Cappeau Hvað stendur upp úr? Fólkið okkar. Samheldnin og hjálpsemin sem einkenndu þessa daga og aðdragandann að brúðkaupinu voru engu líkar og tilfinningin sem við finnum sterkast fyrir eftir brúðkaupið er án efa þakklæti. Það er ekki sjálfgefið að eiga svona mikið af fólki að en við fengum aðstoð við hér um bil allt. Vinir okkar hjálpuðu við alls konar föndur, skipulag, skreytingar og hvað sem þurfti í marga mánuði fram að brúðkaupinu og meðan á því stóð. Þorgeir Blöndal, grafískur hönnuður og einn af elstu og bestu vinum Stefáns, bjó til „monogram“ úr stöfunum okkar, Katla Ársælsdóttir vinkona okkar eyddi mörgum vikum í að sauma ótrúlega fallegan hringapúða, gullkonan Þórdís Þorkelsdóttir handskrifaði nöfnin á öllum gestum fyrir sætamerkingar, Jón Gunnar vinur okkar tók athöfnina upp á myndband, Sigrún Sayeh, ein besta vinkona mín, stökk til í öll möguleg hlutverk á brúðkaupsdaginn og greip alla bolta sem við höfðum gleymt að hugsa fyrir og áfram mætti lengi telja. Fjölskylda okkar og vinir vörðu síðan öll tíma og peningum í að ferðast, undirbúa atriði, aðstoða og taka þátt í þessu ævintýri með okkur. Við erum ótrúlega heppin með vini og fjölskyldu og höfum aldrei fundið jafn sterkt fyrir því og þarna. Performansið hans Páls Óskars var líka algjör hápunktur. Við erum miklir aðdáendur Palla og sannfærð um að enginn íslenskur tónlistarmaður nái jafn vel til ólíkra kynslóða. Pallaballið var algjörlega fullkomið og ungir sem aldnir gátu notið sín í botn! Hjónin eiga mjög gott fólk í kringum sig sem dansaði með þeim fram eftir nóttu.Morgane Cappeau Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Unnar Karl, stórvinur okkar, sá um veislustjórn og stóð sig einstaklega vel, enda með eindæmum klár, skemmtilegur og sjarmerandi. Við uppljóstruðum daginn eftir brúðkaupið að hann hefði aldrei farið í brúðkaup áður sem fólki fannst bæði ótrúlegt og mjög fyndið. Amna Hasecic vinkona okkar sá um að stýra brúðkaupsdeginum (e. coordinate) en hún hefur starfað við ótal viðburði og er ein pottþéttasta og traustasta manneskja sem við þekkjum. Við vildum halda ræðum á brúðkaupsdaginn í lágmarki en báðum um nokkrar ræður frá einstaklega kærum vinum og fjölskyldumeðlimum. Þær voru allar ólíkar og frábærar og komu okkur ýmist til að skellihlæja, gráta eða bæði. Stefán var innsiglaður í fjölskyldu Kristínar í einstökum söng.Morgane Cappeau Til viðbótar við þær þá söng stórfjölskyldan mín lagið Delilah með Tom Jones, sem er sungið í öllum fjölskyldusamkomum án þess að skeytt sé um hve viðeigandi umfjöllunarefni lagsins er, og Stefán fékk að vera með í fyrsta skipti sem fullgildur fjölskyldumeðlimur. Nokkrar vinkonur mínar komu mér síðan stórkostlega á óvart þegar þær fluttu frumsamið dansatriði við lagið Work Bitch með Britney Spears en í því lagi syngur Britney einmitt til hlustandans að hann verði að vinna ef hann vill „Party in France!“ Aðalskemmtiatriðið var síðan auðvitað Páll Óskar! Work Bitch dansinn kom Kristínu skemmtilega á óvart.Morgane Cappeau Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Við áttum alltaf von á því að þetta yrðu mjög fallegir og skemmtilegir dagar með fólkinu okkar en okkur óraði samt ekki fyrir því hversu góður andi myndi raunverulega skapast. Gleðin og ástin í loftinu var næstum því áþreifanleg og alveg magnað að finna hvað allir voru mættir til að skemmta sér vel og eiga dýrmætar stundir saman. Annars kom okkur á óvart hvað það var frábært að halda dögurð daginn eftir brúðkaupið, það var algjörlega fullkomið að geta kvatt alla, þakkað fyrir okkur og aðeins náð áttum áður en allir fóru. Fyrir fram litum við á það sem smá aukaviðburð en eftir á að hyggja hefðum við aldrei viljað sleppa því. Svo kom líka á óvart hvað gestirnir okkar voru hrifnir af ostrum! Dagurinn var dásamlegur frá upphafi til enda.Morgane Cappeau Hvað voru margir gestir? Í kringum 100. Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir þau? Það gekk vel! Ég varð svo pirruð á umræddum brúðkaups-algorithma þegar ég byrjaði að sjá endalaust á samfélagsmiðlum um fokdýra kjóla og föt fyrir „wedding wardrobe“ að ég ákvað að „thrifta“ allt sem ég myndi klæðast. Kristín ákvað að hún vildi gefa gömlum flíkum nýtt líf fyrir brúðkaupið.Morgane Cappeau Ég bjó í London um árabil og er svo heppin að eiga þar góða vini sem voru til í að hjálpa mér í þessu verkefni og taka á móti fötum og skóm fyrir mig. Ég lá yfir síðunum Vinted og StillWhite í marga mánuði að leita að notuðum brúðarkjól og öðrum flíkum fyrir brúðkaupsdagana. Ég endaði á að kaupa fallegan og einfaldan silkikjól sem ég fann á StillWhite og lét sníða hann betur að mér hjá Malen í Eðalklæðum. Brúðarskórnir voru flatbotna Jimmy Choos sem ég keypti á tíu þúsund kall af einhverri megaskvísu sem hefði fengið þá á „sample“ útsölu. Kristín Hulda keypti Jimmy Choo skó á tíuþúsund krónur.Morgane Cappeau Ég keypti slörið nýtt en þá skó og allt annað sem ég klæddist fann ég á Vinted eða átti fyrir. Ég var ekki með neinn sérstakan innblástur en vissi að ég vildi vera í klassískum kjól úr vönduðu efni. Ég vildi líka að hann væri svolítill prinsessukjóll því ég mun líklega ekki klæðast slíkum aftur. Stefán endaði með töluvert dýrari brúðkaupsfataskáp því hann nýtti tækifærið og endurnýjaði fínu fötin sín í stórum stíl. Hann lét sauma á sig hörjakkaföt í Frakklandi fyrir pizzukvöldið og smókinginn sem hann klæddist á brúðkaupsdaginn fékk hann í Kölska. Stefán fékk jakkafötin frá Kölska. Hér er hann með Steini, bróður sínum, sem gaf hjónin saman.Morgane Cappeau Varstu með fataskipti? Já! Við skiptum bæði um föt fyrir fyrsta dansinn til að vera í þægilegri fötum fyrir partíið. Ég skipti í silfraðan pallíettukjól og silfurlitaða skó og Stefán fór í dansvænni buxur og glimmerskyrtu. Kristín var í alvöru prinsessukjól og skipti svo yfir í dansvænni partíkjól.Morgane Cappeau Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Ég held að það sé mikilvægast að halda brúðkaup sem er eftir manns eigin höfði og hentar staðnum sem fólk er á í lífinu, án þess að týnast í hugmyndum um hvernig brúðkaup „eiga að vera“ eða því sem maður sér á samfélagsmiðlum. Brúðkaup þurfa síður en svo að vera stór og íburðarmikil. Við létum gefa okkur saman á pappír á Íslandi í ágúst og héldum þá litla athöfn heima með foreldrum okkar, fórum í hádegismat með nánustu vinum og fjölskyldu og gistum á hóteli um nóttina. Það var engu síður rómantísk og falleg leið til að halda upp á ástina og hentar örugglega mörgum mun betur en risaveisla með kostnaðinum og umstanginu sem því fylgir. Þó að við höfum verið meðvituð um að eyða ekki í eitthvað sem okkur þótti óþarfi þá erum við auðvitað í forréttindastöðu að hafa einu sinni getað látið okkur detta í hug að halda brúðkaup af þessu tagi. Þar fyrir utan þá elskum við að skipuleggja matarboð og partí og stórt brúðkaup var því algjörlega í okkar anda! Kristín Hulda og Stefán eru mikið partífólk, þau elska að bjóða í matarboð og gera mikið úr tilefnum. Morgane Cappeau Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu? Við náðum að svífa nokkuð ljúflega niður af bleika skýinu sem fylgdi þessu. Það hjálpaði mikið að fara strax í brúðkaupsferð en við flugum til Korsíku eftir brúðkaupið. Þar áttum við yndislega tíma, gengum á fjöll, flatmöguðum á ströndinni og gátum talað stanslaust um brúðkaupið án þess að annað fólk þyrfti að sitja undir því, mjög hentugt.
Brúðkaup Ástin og lífið Tímamót Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Frakkland Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira