Körfubolti

Margar fengu að skína í stór­sigri Ís­lands­meistaranna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emma Grace Theódórsson var með 16 stig og 10 fráköst á 19 mínútum fyrir Njarðvík í kvöld.
Emma Grace Theódórsson var með 16 stig og 10 fráköst á 19 mínútum fyrir Njarðvík í kvöld. Vísir/Anton

Njarðvíkurkonur fögnuðu sínum þriðja sigri í röð í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar liðið vann 53 stiga stórsigur á Fjölni, 108-55.

Njarðvík tapaði fyrsta leik sínum í deildinni en hefur svarað með þremur sigrum í röð. Fjölniskonur hafa aftur á móti tapað öllum sínum leikjum.

Sjö leikmenn Njarðvíkur skoruðu tíu stig eða meira í kvöld en allar fengu að spila. Krista Gló Magnúsdóttir skoraði níu stig og var því nálægt því að vera áttundi leikmaður liðsins með tíu stig eða meira.

Brittany Dinkins skoraði 17 stig á 16 mínútum fyrir Njarðvík, Emma Grace Theódórsson var með 16 stig og 10 fráköst á 19 mínútum og Ásta Júlía Grímsdóttir var með 10 stig og 11 fráköst á 16 mínútum. Sara Björk Logadóttir skoraði 13 stig, Hulda María Agnarsdóttir bætti við 11 stigum og Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir var með 10 stig eins og Helena Rafnsdóttir.

Charisse Fairley skoraði mest fyrir Fjölni eða þrettán stig en Aðalheiður María Davíðsdóttir var með 11 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×