Frumvarp um séríslenskt bónusþak sagt „auka áættu í rekstri“ verðbréfafélaga
Áform fjármálaráðherra um að viðhalda 25 prósenta hámarki á kaupaukagreiðslur starfsmanna verðbréfafyrirtækja eru til þess fallin að „auka áhættu í rekstri [þeirra] fremur en að draga úr henni,“ að mati framkvæmdastjóra Acro verðbréfa. Hann gagnrýnir að stjórnvöld hafi ákveðið að halda í séríslenskar reglur, langtum strangari en annars staðar á Norðurlöndunum, án þess að nokkur greining liggi fyrir um hvaða áhættu þeim sé ætlað að mæta.
Tengdar fréttir
Strangt þak á kaupauka hefur leitt til hærri launa í fjármálakerfinu
Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað, segja stjórnendur fjármálafyrirtækja. Það eykur rekstraráhættu fyrirtækjanna, einkum þeirra minni.
JPMorgan Chase afnemur hámark á bónusa í Bretlandi
Bandaríski stórbankinn JPMorgan Chase hefur fetað í fótspor Goldman Sachs og tilkynnt starfsfólki sínu í Bretlandi að það muni afnema hámark á kaupaukagreiðslur. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent af árslaunum sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað sem kann að auka rekstraráhættu fyrirtækja, einkum þeirra minni. Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið.
Endurskoða þarf séríslenskar reglur um kaupauka, segir meðeigandi LOGOS
Það er ástæða til þess, að sögn Óttars Pálssonar, lögmanns og meðeiganda hjá LOGOS, að endurskoða núverandi takmarkanir á kaupaukum fjármálafyrirtækja með það fyrir augum að færa gildissvið þeirra og efnisreglur nær því sem þekkist í löndunum í kringum okkur. Séríslenskar takmarkanir á kaupaukum skerða samkeppnishæfni, hækka föst laun bankastarfsmanna verulega og geta jafnvel stuðlað að óæskilegri ákvarðanafælni.
Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður
Smærri fjármálafyrirtæki, meðal annars Fossar og Acro, leita nú leiða til hagræðingar samhliða erfiðu árferði á verbréfamörkuðum og hafa þurft að segja upp starfsfólki á undanförnum dögum. Velta á hlutabréfamarkaði skrapp saman um nærri fimmtíu prósent á fyrri árshelmingi.
Verðbréfafyrirtæki fá líklega að greiða hærri kaupauka en bankar
Líklega verður verðbréfafyrirtækjum heimilt að greiða hærri kaupauka en viðskiptabankar þegar reglur vegna EES-samningsins verða leidd í lög hérlendis á næsta ári. Gildandi rammi er sagður óþarflega flókinn og íþyngjandi fyrir flest verðbréfafyrirtæki. Fjármála- og efnahagsráðuneytið bendir á að verðbréfafyrirtæki hafi ekki hliðstætt kerfislægt mikilvægi og lánastofnanir og því séu „ekki viðlíka samfélagslegir hagsmunir“ af því að takmarka áhættutöku þeirra með sama hætti og gildir um starfsemi banka.