Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar 22. október 2026 08:31 Nýlega hlustaði ég á afskaplega áhugavert erindi frá íslenskum lækni, Jóhanni Jónssyni, sem hefur á síðustu áratugum sérhæft sig í líffæraígræðslum í Bandaríkjunum. Jóhann hefur líka lyft grettistaki varðandi líffæraígræðslur hér á Íslandi, helst er þar um að ræða ígræðslur á nýrum en aðrar nauðsynlegar aðgerðir fyrir Íslendinga fara að mestu leyti ennþá fram í Svíþjóð. Það er magnað að kynnast því hvernig einn aðili getur, með sérfræðiþekkingu sinni og dugnaði, náð að ýta slíku verkefni úr vör hér á landi og sýnir okkur hversu mikilvægt einstaklingsframtakið er. Ég er líffæragjafi – en veit fjölskyldan það? Í erindi Jóhanns rifjaðist upp fyrir mér að árið 2018 voru sett lög hér á landi sem fela í sér að fólk teljist sjálfkrafa líffæragjafar við andlát. Þeir sem ekki vilja vera líffæragjafar þurfa að skrá sérstaklega þá afstöðu sína á island.is. Að sögn Jóhanns kemur það hins vegar nokkuð reglulega fyrir að þrátt fyrir að einstaklingur hafi kosið að vera líffæragjafi þá leggist nánir aðstandendur gegn líffæragjöfinni. Þetta er líklega staða sem fáir hafa leitt hugann að geti komið upp og eru viðbrögð aðstandenda því skiljanleg í erfiðum aðstæðum. Vegna þessa ákvað ég að setjast niður með eiginmanni mínum og dætrum og ræða þessi mál við þau. Ég útskýrði fyrir þeim að ég vilji sannarlega gefa líffæri mín eftir andlát ef sú staða myndi koma upp og ef aðstæður leyfa. Þrátt fyrir að vera heldur niðurdrepandi umræðuefni þá tel ég mikilvægt fyrir fjölskyldur að ræða þessi mál til að vera viðbúin ef slys eða óvænt andlát ber að garði. Innan minnar fjölskyldu er það nú skýrt hverjar óskir mínar eru varðandi líffæragjöf, og ég treysti mínum nánustu til að virða þær. Þörfin er mikil Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum þurfa nokkrir tugir Íslendinga á líffæraígræðslu að halda á hverju ári. Árið 2025 voru 14 líffæragjafir hér á landi, sem er metfjöldi. Við eigum að halda áfram að byggja á þeirri góðu vinnu sem Jóhann og samstarfsfólk hans hefur unnið á þessu sviði og að mínu mati er það gífurlega jákvætt að sífellt fleiri líffæragjafir og ígræðslur fari fram hér á landi. Helsti kosturinn er auðvitað sá að það er talsvert þægilegra fyrir líffæraþega að fara í slíka aðgerð hér heima, auk þess sem kostnaðurinn er líklega margfalt lægri en ef aðgerðin færi fram erlendis. Þrátt fyrir þennan góða árangur er framboð á líffærum til gjafa ennþá mun minna en þörfin, eins og kemur reglulega fram hjá þeim sem vinna að þessum málum. Með þessu greinarkorni vil ég hvetja alla til að taka umræðuna um líffæragjafir við fólkið sitt, því hver líffæragjöf getur bjargað lífi. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í SV kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Líffæragjöf Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar