Enski boltinn

Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til

Andri Broddason skrifar
Albert Brynjar Ingason vill fá annan harðan þjálfara eins og Ruben Amorim til þess að hreinsa til hjá Manchester United.
Albert Brynjar Ingason vill fá annan harðan þjálfara eins og Ruben Amorim til þess að hreinsa til hjá Manchester United. Samsett/Getty/Vísir

Mikið fjaðrafok hefur verið hjá Manchester United eftir slæmt gengi félagsins og mikla gagnrýni leikmanna á stjórn félagsins. Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, og Michael Carrick, stjóri Manchester United, skutu föstum skotum hvor á annan eftir stórtap gegn Como í gær.

Sérfræðingar Sýnar Sport ræddu viðtölin og stöðu Manchester United eftir leikinn og fannst þeim óvenjulegt að fyrirliði og þjálfari rífist í fjölmiðlum.

Klippa: Allt í skrúfunni hjá Manchester United

„Þótt þetta sé ekki bein árás á Carrick frá Bruno [Fernandes] þá eiginlega er þetta samt árás. Að svona mikilvægur leikmaður sé að tala um taktíkina eins og hún hafi verið röng. Það er skot á þjálfarateymið,“ sagði Sigurvin Ólafsson og segir orkuna inni í búningsklefanum vera orðna slæma.

Albert Brynjar Ingason hefur ekki verið bjartsýnn á framtíð Michael Carrick sem stjóra Manchester United og hefur afstaða hans ekkert breyst eftir leik gærkvöldsins. Hann líkir stöðu liðsins við þegar Ole Gunnar Solskjaer var látinn fara nema nú er staðan verri.

„Það eru mjög vondar frammistöður sem United er búið að eiga á þessu tímabili, með sjö stig eftir sjö umferðir í ensku úrvalsdeildinni og hefur liðið ekki unnið í sjö leikjum í röð í öllum keppnum,“ sagði Albert Brynjar og þuldi upp slæma frammistöðu hjá Manchester United í síðustu leikjum.

„Ef maður horfir á Carrick, ef maður á að vera góður við hann einhvers ,staðar hvar getur maður verið það? Uppleggið er ekki gott hjá liðinu, mér finnst hann alltof linur í viðtölum, liðið virkar fyrir að vera ekki í standi og leikstjórnunin hans virðist vera ekki nein.“

Eitt af því helsta sem Bruno gagnrýndi í sínu viðtali var þjálfarateymið og benti Albert Ingi á að teymið væri líklegast ekki nógu gott til að starfa hjá félaginu.

„Þessir menn í kringum hann [Jhonny] Evans, [Jonathan] Woodgate sem var rekinn með [Carrick] frá Middlesborough og Steve Holland. Er þetta fjögurra manna teymi sem á að vera með United?“

Sama hringrás aftur og aftur

Bæði Albert Brynjar og Sigurvin tóku eftir því að það hljómaði eins og Fernandes vildi spila líkt og Como gerði. Það væri best fyrir Manchester United að stela Cesc Fabregas og fá hann til að þjálfa liðið.

Stuðningsmenn Manchester United virðast vera orðnir langþreyttir á því að fyrrum leikmenn taki við sem stjórar félagsins. Það sé markmið að fá gömlu góðu dagana undir stjórn Sir Alex Ferguson til baka en sá tími er liðinn. Liðið þarf að finna aðra leið til þess að ná árangri frekar en að horfa endalaust til baka.

Lausn Alberts Brynjars á vanda Manchester United er að fá annan stjóra líkt og Ruben Amorim sem getur hreinsað vel til hjá félaginu. Það gekk því miður ekki hjá Amorim en lausn félagsins er í þá áttina.

Viðtölin og umræðan um þau má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×