Ólafur Ingi hættur með Blika Valur Páll Eiríksson skrifar 27. október 2026 09:22 Ólafur Ingi Skúlason er ekki lengur þjálfari Breiðabliks. Anton Brink/Vísir Breiðablik hefur sagt Ólafi Inga Skúlasyni upp störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins í fótbolta. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Ólafur er hættur eftir ár í starfi.
Ólafur tók við liðinu af Halldóri Árnasyni í október 2025 og stýrði liðinu í Sambandsdeildinni síðasta vetur og í Bestu deild karla í sumar. Hann vann bikarmeistaratitil með Breiðabliki í sumar en árangurinn í deildinni var undir væntingum. Halldóri Árnasyni var sagt upp sem þjálfara Breiðabliks undir lok tímabils í Bestu deild karla í fyrra og Ólafur Ingi tók við þegar Blikar undirbjuggu þátttöku sína í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Ólafur hætti sem þjálfari U21 árs landsliðs Íslands til að taka við Blikum síðasta haust og náði í fyrstu stig Kópavogsliðsins í Sambandsdeild. Blikar komust þó ekki áfram úr deildarkeppninni. Breiðablik varð bikarmeistari undir stjórn Ólafs í sumar en árangur liðsins í deildinni var undir væntingum. Breiðablik hafnaði í fimmta sæti deildarinnar og lauk mótinu á 8-3 tapi fyrir KR síðustu helgi. Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari Ólafs í Kópavogi, lætur einnig af störfum. Yfirlýsing Breiðabliks Ólafur Ingi Skúlason lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla Breiðabliks. Ólafur Ingi kom til starfa hjá Breiðablik í október 2025 og stýrði sínum fyrsta leik gegn Finnska liðinu KuPs í Sambandsdeildinni. Í leiknum náði liðið í sín fystu stig í deildakeppni í Evrópu. Undir stjórn Ólafs náði liðið í fimm stig í deildakeppninni sem var góður árangur. Á nýloknu keppnistímabili leiddi hann liðið til bikarmeistaratitils í annað skiptið í sögu félagsins og er það jafnframt fimmti titill meistaraflokks karla. Á tíma sínum hjá félaginu hefur Ólafur lagt áherslu á að gefa ungum leikmönnum tækifæri í meistaraflokki og lagt sig allan fram um að leyfa þeim að þroskast sem leikmenn. Honum var umhugað um hagsmuni félagsins og átti í afar góður samstarfi við þá sem að félaginu standa. Samhliða þessum breytingum lætur Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari liðsins, einnig af störfum. Ólafur vill koma á framfæri þakklæti til félagsins og allra þeirra sem að starfi þess koma: “Ég kveð Breiðablik sáttur og stoltur af þeim árangri sem við náðum saman. Ég skil við klúbbinn á frábærum stað og óska Breiðablik og öllum sem að liðinu standa velfarnaðar í framtíðinni." Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Ólafi Inga og Jóni Guðna fyrir sín störf og óskar þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem taka við.
Breiðablik Besta deild karla Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“