Íslenski boltinn

Var klár í sam­keppnina við Ingvar

Andri Broddason skrifar
Aron Snær var bjartsýnn þegar hann gekk til Víkings í samkeppni við Ingvar Jónsson.
Aron Snær var bjartsýnn þegar hann gekk til Víkings í samkeppni við Ingvar Jónsson. Samsett/Vísir

Aron Snær Friðriksson, markmaður Víkinga, fékk gullhanskann eftir tímabilið í Bestu deild karla. Það ætti að koma fáum á óvart þar sem Víkingur var með besta varnarlið deildarinnar en á tímabilinu gekk mikið á.

„Þetta er búið að vera ógeðslega gaman, þetta er eins og sjö tímabil í einu, það er búið að ganga svo mikið á. Ég er búinn að upplifa margt en þetta er geggjað,“ sagði Aron Snær í lokaþætti Stúkunnar.

Klippa: Stúkan: Aron Snær fær gullhanskan

Aron Snær kom til Víkings fyrir tímabilið frá Njarðvík en var líklegast ekki að búast við að spila eins stórt hlutverk með liðinu og hann gerði. Ingvar Jónsson var hjá Víkingum og því erfið samkeppni fyrir Aron Snæ.

„Við fótboltamenn erum það ruglaðir að við höldum alltaf að við séum að fara að spila. En ég gerði mér alveg fulla grein fyrir því að [Ingvar] er líklegast sigursælasti markmaður Íslands. Ég vissi að ég væri að fara í erfiða samkeppni en ég hafði alltaf trú á því að ég gæti klárað þetta.“

Ingvar greindist með illkynja krabbamein og gat því ekki spilað meira á tímabilinu.

Liðið hentaði honum vel

Víkingur var ríkjandi meistari fyrir tímabilið og það voru miklar væntingar til liðsins fyrir tímabilið. Því fylgir mikil pressa fyrir markmann en Aroni Snæ fannst sú áskorun vera góð.

„Þú ert kannski ekki að verja ellefu skot í leik, en það kemur eitt móment og þú þarft að vera með það á hreinu. Þú þarft að geta spilað út, spilað hátt og tekið fyrirgjafir og stungusendingar, sem hentar mér fínt.“

Aron Snær var liðsfélagi Alberts Brynjars Ingasonar hjá Fylki og benti Albert Brynjar á að margir leikmenn þaðan hafa orðið Íslandsmeistarar. Þar viðurkenndi Aron Snær að hann væri mikill stuðningsmaður Fylkis þrátt fyrir að vera leikmaður Víkings.

„Ég fylgist mjög mikið með [Fylki] og missi eiginlega ekki af leik og ég var virkilega pirraður yfir því að þeir komust ekki upp í Bestu deildina í ár,“ sagði Aron Snær og grínaðist með að Albert Brynjar hefði kennt leikmönnum Fylkis mikið.

Góður skotmenn

Einn af kostunum við að æfa með Víking er að það er mikið af frábærum skotmönnum þar. Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið einn besti spyrnumaður í sögu Íslendinga en þeir eru fleiri sem eru góðir skotmenn.

Sveinn Margeir Hauksson átti eitt af mörkum tímabilsins þegar hann skoraði úr aukaspyrnu í næstsíðustu umferð deildarinnar gegn Breiðablik. Enda sagði Aron Snær að hann væri bara rétt á eftir Gylfa Þór.

Klippa: Mark Sveins Margeirs gegn Breiðablik

Ögmundur Kristinsson kom til Víkings í sumar og gaf Aroni Snæ aukna samkeppni. Það er oft erfitt að vera í liði en samt vera í keppni við annan markmann um hvor á að vera í byrjunarliðinu.

„Ég held að 90 prósent af markmönnum séu ágætisdrengir og þá er þetta bara teymisvinna, en auðvitað er það persónulegt þegar þér er hent á bekkinn. En í grunninn ertu í teymisvinnu og vilt að félagið þitt vinni. Við fengum Ögmund inn og hann gerði fáranlega vel fyrir okkur og við unnum mjög vel saman.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×