Skoðun

Peptíð og í­þróttir

Birgir Sverrisson skrifar

Nýlega fór Lyfjaeftirlit Íslands að ræða peptíð sérstaklega á fræðslufyrirlestrum þess vítt og breitt, enda hefur framboð og eftirspurn eftir peptíðum vaxið gríðarlega á einungis nokkrum misserum. Einnig er aðgengi að þessum efnum almennt auðvelt.

Samfélagsmiðlar hafa gegnt stærsta hlutverkinu í markaðssetningu peptíða, og af henni að dæma mætti almennt ætla að verið sé að efnavæða heilsu fólks. Reynt er að telja fólki trú um að það sé ekki að “maxa” ákveðna þætti í lífi sínu eins og útlit, svefn og langlífi, nema það setji utanaðkomandi (og oft óþekkt) efni í líkama sinn.

Flest fólk er ekki endilega áhrifagjarnt á slíka sölumennsku þó algóryþminn á samfélagsmiðlum sé oft slægur. Á sama tíma hefur verið sýnt fram á að (mikil) notkun samfélagsmiðla getur haft neikvæð áhrif á eigin líkamsímynd, og fer fólk þá stundum að leita annarra lausna en finnast í hreinni náttúru og fjölbreyttri fæðu. Þá verða auglýstar skyndilausnir oft ofan á, og freistnivandi skapast.

Það versta er að markaðssetningunni er ekki síst beint að ungu fólki og börnum og óformlegar rannsóknir okkar benda til þess að mjög stór hluti barna frá 13-14 ára aldri, sérstaklega drengja, hefur séð efni á samfélagsmiðlum sem talar vel um áhrif ólöglegra peptíða.

Sum peptíð eru bönnuð í íþróttum

Ekki nærri öll notkun peptíða flokkast sem lyfjamisnotkun í íþróttalegum skilningi, jafnvel þó efnin séu hvergi samþykkt og framleidd án gæðaeftirlits, en mörg þeirra eru þó bönnuð.

Meðal peptíða og skyldra efna sem eru bönnuð í íþróttum má nefna:

  • BPC-157: Markaðssett sem efni sem geti flýtt fyrir endurheimt (gróanda vöðva, sina og liðbanda).
  • TB-500: Markaðssett til að stuðla að endurheimt og viðgerð vefja.
  • CJC-1295 og ipamorelin: Efni sem hafa áhrif á losun vaxtarhormóns.
  • AOD-9604: Brot úr vaxtarhormóni sem hefur meðal annars verið markaðssett til fitubrennslu.
  • MOTS-c: Tilraunapeptíð sem tengist rannsóknum á efnaskiptum og orkustjórnun frumna.

Þessi efni falla undir mismunandi flokka bannlista World Anti-Doping Agency (WADA) og eru bönnuð bæði innan og utan keppni í íþróttum.

Óvissa um virkni og öryggi

Á vísindaráðstefnu bandarísku lyfjaeftirlitsstofnunarinnar (USADA) nú nýlega var sérstaklega fjallað um ört vaxandi markað fyrir peptíð og önnur tilraunaefni.

Þar kom meðal annars fram og annars staðar að vinsældir margra þessara efna væru að miklu leyti drifnar áfram af samfélagsmiðlum og markaðssetningu, fremur en traustum vísindalegum rannsóknum.

Þrátt fyrir fullyrðingar um aukinn vöðvavöxt, hraðari endurheimt og bættan árangur skortir enn fullnægjandi rannsóknir á virkni og langtímaöryggi margra þessara efna.

Peptíð geta innihaldið önnur efni en auglýst er

Annað vandamál er óvissa um raunverulegt innihald þeirra peptíða (og annarra efna) sem seldar eru á netinu.

Í rannsóknum sem kynntar voru á ráðstefnunni kom fram að vörur sem markaðssettar voru undir heitinu TB-500 innihéldu í nokkrum tilvikum önnur peptíð en auglýst var, meðal annars thymosin beta-4, sem er einnig bannað í íþróttum innan og utan keppni.

Þetta undirstrikar áhættuna sem fylgir kaupum á ólöglegum eða ósamþykktum peptíðum, enda geta neytendur ekki gengið að því vísu að innihald þeirra sé í samræmi við merkingar.

Ábyrgð íþróttafólks

Samkvæmt lyfjareglum í íþróttum ber íþróttafólk sjálft ábyrgð á þeim efnum sem finnast í líkama þess. Það á einnig við þótt efni sé keypt löglega, ráðlagt af öðrum eða markaðssett sem heilsueflandi vara.

Mikilvægt er að hafa í huga að þótt tiltekið peptíð sé ekki sérstaklega nafngreint á bannlista WADA getur það samt verið bannað, meðal annars ef um er að ræða ósamþykkt lyf eða efni sem fellur undir annan flokk bannlistans.

Bannlista WADA má finna á heimasíðu Lyfjaeftirlits Íslands, lyfjaeftirlit.is, sem og á eftirfarandi slóð: wada-ama.org/en/prohibited-list

Höfundur er framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands / Anti-Doping Iceland




Skoðun

Sjá meira


×