Íslenski boltinn

„Magnús er þjálfari Aftur­eldingar og verður það á­fram“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Magnús Már fékk ekki leyfi til að ræða við Breiðablik.
Magnús Már fékk ekki leyfi til að ræða við Breiðablik. vísir / anton

Afturelding hafnaði ósk Breiðabliks um að hefja viðræður við Magnús Má Einarsson, þjálfara Mosfellinga, vegna þjálfarastarfs hjá karlaliði Breiðabliks í fótbolta. Formaður meistaraflokksráðs hjá Aftureldingu segir að Magnús þjálfi Aftureldingu áfram.

Frá þessu er greint á Fótbolti.net. Magnús Már er meðal þeirra sem orðaður er við þjálfarastöðu Breiðabliks sem sögðu Ólafi Inga Skúlasyni upp á þriðjudaginn var.

Karl Maack, formaður meistaraflokksráðs Aftureldingar, vildi ekki staðfesta hvort Afturelding hefði neitað Breiðabliki í samtali við Vísi. Samskipti stjórnar Aftureldingar við Breiðablik væri trúnaðarmál.

Karl segir hins vegar:

„Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram. Hann hefur unnið hér frábært starf og við viljum sjá hann sinna því sem lengst. Við erum á góðri vegferð og ætlum okkur að halda henni áfram með Magnúsi.“

Magnús Már hefur stýrt Aftureldingu frá árinu 2019 og stýrði liðinu upp í Bestu deild karla í fyrsta sinn í sögu félagsins fyrir þremur árum síðan. Liðið féll á síðasta ári en fór beinustu leið upp aftur í sumar sem Lengjudeildarmeistari.

Afturelding fór jafnframt í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins en tapaði þar fyrir Breiðabliki sem varð bikarmeistari í sumar.

Magnús hefur tengingu við Kópavoginn þar sem bróðir hans, Anton Ari Einarsson, er markvörður Breiðabliks.

No komment, sagði Magnús

Vísir heyrði hljóðið í Magnúsi Má í vikunni þar sem hann sagði einmitt leyfi Aftureldingar fyrir viðræðum forsendu fyrir því að hann myndi ræða við Blika. Starfið væri spennandi.

„Það er eiginlega bara no komment á allt,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar. „Ég er bara samningsbundinn Aftureldingu og er mjög ánægður þar. Þar er ég bara að undirbúa næsta tímabil.“

„Þeir þurfa þá að fara í gegnum Aftureldingu og fá leyfi fyrir viðræðum fyrst. Auðvitað er Blikastarfið spennandi en minn hugur er bara við það að byggja upp lið til að takast á við komandi átök í Bestu deildinni.“

Eftir no komment ummæli Magnúsar Más lækkaði stuðull á það að hann tæki við Breiðabliki úr 10,0 í 5,0.

Jökull Elísabetarson er hins vegar talinn líklegastur til að taka við Breiðabliki eins og sakir standa. Jökull er án starfs eftir að hafa stýrt Stjörnunnni þar sem honum var sagt upp á miðju sumri.

Jökull þekkir til í Kópavogi en hann var hluti af Íslandsmeistaraliði félagsins árið 2010 og hóf þjálfaraferil sinn hjá venslaliði félagsins, Augnabliki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×