Íslenski boltinn

Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarð­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Pálmi Rafn ætlar aftur í boltann og ver mark Njarðvíkur næsta sumar.
Pálmi Rafn ætlar aftur í boltann og ver mark Njarðvíkur næsta sumar. Njarðvík

Pálmi Rafn Arinbjörnsson hefur ákveðið að hefja fótboltaiðkun á ný og mun verja mark Njarðvíkur í Lengjudeildinni næsta sumar.

Pálmi Rafn hætti knattspyrnuiðkun fyrir sléttu ári síðan. Hann fór þá í það sem sagt var ótímabundið leyfi frá fótbolta er hann var markvörður Íslandsmeistara Víkings.

Pálmi Rafn sleit þá samningi sínum við Víkinga og hefur verið án liðs, enda spilaði hann engan fótbolta í sumar. 

Hann hefur nú samið við Njarðvíkinga um að verja mark liðsins í sumar. Njarðvík er uppeldisfélag Pálma Rafns sem var svo í ungmennaliðum Wolves á Englandi milli 2020 og 2023 áður en hann samdi við Víkinga.

Pálmi Rafn lék 31 leik fyrir Víking í öllum keppnum á árunum 2024 og 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×