Enski boltinn

Eiður með gæsa­húð á Anfield

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eiður Smári og Hjörvar Hafliðason ræddu málin á Anfield.
Eiður Smári og Hjörvar Hafliðason ræddu málin á Anfield. Sýn Sport

Eiður Smári Guðjohnsen og Hjörvar Hafliðason eru mættir á Anfield þar sem stórleikur Liverpool og Arsenal fer fram í dag. Þeir spáðu í spilin fyrir stórleikinn.

„Þetta er besta varnarlið deildarinnar sem er Arsenal, ábyggilega erfiðasta lið til að eiga við og spila við. En þeir eru að mæta á sennilega erfiðasta útivöll sem að enska deildin býður upp á og það er hér á Anfield. Ég tala nú ekki um þegar að stemningin fer að magnast. Fræga Kop-stúkan hér,“ segir Eiður Smári á vellinum og bætir við:

Klippa: Eiður og Hjörvar spá í spilin

„Sko, ég er ekki mikill Liverpoolmaður, ég held að það hafi komið skýrt fram en alltaf get ég borið virðingu fyrir þeim þegar maður kemur hérna, það er einhver gæsahúðarstemning.“

Þeir félagar ræddu málin frekar og umræðuna má sjá í spilaranum.

Leikur Liverpool og Arsenal hefst klukkan 16:30 og er í beinni á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×