Eiður fann til með Liverpool Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 17:41 Alexis Mac Allister fékk dauðafæri í fyrri hálfleik og gerði tilkall til að fá vítaspyrnu eins og fleiri leikmenn Liverpool. Getty Eiður Smári Guðjohnsen sagði Liverpool vel hafa getað fengið vítaspyrnu í fyrri hálfleik gegn Arsenal í dag. Þeir Hjörvar Hafliðason fóru yfir málin í hálfleik í beinni útsendingu frá Anfield.
Arsenal var 1-0 yfir eftir fyrri hálfleikinn með marki frá Kai Havertz. „Einhver smá misskilningur á milli Alisson og Jacquet sem hugsanlega hefði átt að lesa sendinguna fyrr. Liverpool kom sér í vandræði þannig og þetta var í raun það eina sem Arsenal uppskar þannig séð,“ sagði Eiður. „Annars hefur þetta bara verið Liverpool að pressa á Arsenal,“ bætti hann við. Klippa: Eiður taldi Arsenal-menn mega prísa sig sæla Það komu upp nokkur atvik í fyrri hálfleiknum þar sem Liverpool-menn heimtuðu vítaspyrnu: „Ég get alveg fundið til með Liverpool að fá ekki alla vega hálft víti. Stærsta atriðið var þegar Isak er við það að fara í boltann en það er togað í hann. Mér fannst bara Isak ekki gera nógu mikið úr því til að setja pressu á dómarann. Svo eru 2-3 önnur atriði sem eru hálfvegis víti,“ sagði Eiður. Hjörvar benti á að sóknir Liverpool færu iðulega fram vinstri kantinn og liðið var afar nálægt því að jafna metin. „Það er ekkert skrýtið að Liverpool sé að fara upp vinstra megin þegar Araujo og Gakpo eru hinu megin, ekki jafnmikill sóknarþungi með Araujo. En það verður að segjast að Mac Allister hafi fengið dauðafæri til að jafna,“ sagði Eiður sem kvaðst ekki búast við breytingum hjá þjálfurunum fyrr en að líða tæki á seinni hálfleik. „Sem stendur hugsa ég að Iraola sé ágætlega sáttur miðað við spilamennsku og þrýstinginn sem þeir eru að setja á Arsenal. Svo getur hann kannski tekið áhættu þegar líður á leikinn.“
Enski boltinn Liverpool FC Arsenal FC Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira