Fótbolti

Real heldur sig ná­lægt Barcelona

Sindri Sverrisson skrifar
Táningurinn Yan Diomande skoraði þriðja mark Real Madrid í dag.
Táningurinn Yan Diomande skoraði þriðja mark Real Madrid í dag. Getty/M Gracia Jimenez

Real Madrid átti ekki í vandræðum með að leggja Racing Santander að velli í spænsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Staðan var orðin 3-0 í hálfleik og það urðu lokatölurnar.

Kylian Mbappé skoraði úr vítaspyrnu strax á 11. mínútu, í fyrsta leiknum eftir að hafa orðið í 2. sæti í spennandi kjöri um Gullboltann í ár.

Jude Bellingham bætti svo við marki á 21. mínútu og hinn 19 ára Yan Diomande skoraði þriðja marki á 36. mínútu.

Þar með er Real aðeins þremur stigum á eftir Barcelona líkt og eftir sigurinn gegn Börsungum í El Clasico fyrir viku síðan. Barcelona er með 30 stig, Atlético Madrid 28 og Real Madrid 27 en Real Betis er svo í 4. sæti með 23 stig. Racing er við fallsvæðið með 11 stig í 17. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×