Lífið

Ís­lensk lista­kona sló í gegn í Miami

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Sandra Halldóra Andersen er að gera góða hluti í listheiminum vestanahafs.
Listakonan Sandra Halldóra Andersen er að gera góða hluti í listheiminum vestanahafs. Aðsend

„Það var ótrúleg upplifun að fá tækifæri til að sýna verkin mín í borg sem iðar af lífi og list þessa daga. Miami Art Week er ein stærsta listavika ársins og það er sérstök tilfinning að fá að vera hluti af henni, segir listakonan og rithöfundurinn Sandra Halldóra Andersen, sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum í tæp tólf ár og er að gera öfluga hluti í sinni listsköpun.

Sandra er 33 ára gömul og var 21 árs þegar hún lagði land undir fót og fluttist fyrst til hinnar sólríku Los Angeles. Nú býr hún í New York og nýtur fjölbreytileika borgarinnar í botn. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti og listina.

Sandra vinnur bæði í myndlist og ritlist.Aðsend

Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu?

Ég flutti upphaflega til Los Angeles fyrir tæpum tólf árum til að læra ritlist og frjálsar listir. Ég bý nú í East Village á Manhattan í New York, þar sem ég hef búið síðastliðin átta ár.

Sandra hefur búið í New York síðastliðin átta ár og dagarnir eru fjölbreyttir hjá henni.Aðsend

Hvað ertu að gera þar?

Ég starfa sem listakona og rithöfundur og hef verið að skapa, skrifa og vinna að ýmsum spennandi verkefnum hér. Myndlistin hefur verið stór hluti af starfi mínu undanfarin ár og hef ég meðal annars tekið þátt í fjölda listasýninga bæði hér í Bandaríkjunum og annars staðar erlendis.

Ég vinn aðallega með pappír og bý til þrívíð verk úr mörgum lögum af pappír sem ég móta og raða saman á viðarplötur. Í verkunum leik ég mér með áferð, ljós og skugga og hvernig ólík lög og form skapa ákveðna dýpt og sjónræn áhrif. 

Verkin mín tengjast tilfinningum, minningum og þeirri reynslu sem mótar okkur sem einstaklinga. Mér finnst sérstaklega áhugavert hvernig eitthvað sem kann að virðast ófullkomið eða jafnvel óreglulegt getur orðið að einhverju fallegu.

Listaverk Söndru tengjast tilfinningum, minningum og þeirri reynslu sem mótar okkur sem einstaklinga.Aðsend

Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér?

Þar sem ég er sjálfstætt starfandi eru dagarnir nokkuð fjölbreyttir og fara mikið eftir því hvaða verkefnum ég er að vinna að hverju sinni. Sumir dagar fara í að vinna að listaverkunum mínum, og aðrir fara í skipulagningu sýninga, samskipti við gallerí og undirbúning fyrir komandi verkefni. 

Svo eru auðvitað dagar þar sem ég sit við tölvuna og vinn að ritlistinni. Eitt af því skemmtilega við að starfa sjálfstætt er að fæstir dagar eru alveg eins.

Sandra á sólríkum degi í Los Angeles. Engir dagar eru eins hjá henni úti, hún hefur búið bæði á Vestur- og Austurströndinni og ferðast víða fyrir sýningar.Aðsend

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Það er fyrst og fremst fjölbreytileikinn, frelsið og tækifærin. Það er ótrúlega dýrmætt að búa í borg þar sem alltaf er eitthvað að gerast og maður hefur endalausa möguleika á að prófa nýja hluti. Sérstaklega þegar maður starfar í skapandi geira. 

Hér er alltaf eitthvað í gangi í lista- og menningarlífinu og það er mjög hvetjandi að vera í umhverfi þar sem maður hittir stöðugt fólk sem er að skapa og vinna að svipuðum verkefnum.

Fjölbreytileikinn, frelsið og tækifærin standa upp úr við lífið úti.Aðsend

En mest krefjandi?

Ætli það sé ekki bara að lifa borgina af og ná að standa á eigin fótum, sérstaklega þegar maður hefur lítið bakland hér vegna þess hversu langt maður er frá fjölskyldu og vinum heima á Íslandi.

Sandra þurfti að læra vel inn á borgina og standa með sjálfri sér en elskar lífið úti.Aðsend

Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?

Það er klárlega að taka þátt í hinum ýmsu listasýningum undanfarin ár og þau tækifæri sem hafa skapast í kjölfarið. Eitt af því sem stendur sérstaklega upp úr var þegar ég tók þátt í Red Dot Miami í desember á síðasta ári sem er hluti af Miami Art Week.

Það var ótrúleg upplifun að fá tækifæri til að sýna verkin mín í borg sem iðar af lífi og list þessa daga. Miami Art Week er ein stærsta listavika ársins og það er sérstök tilfinning að fá að vera hluti af henni. Á þessum tíma breytist eiginlega öll borgin í einn stóran vettvang fyrir list og menningu.

Það var ógleymanlegt fyrir Söndru að sýna í Miami.Aðsend

Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju?

Greenpoint í Brooklyn hefur nýlega komist á toppinn hjá mér. Hluti hverfisins hefur svolítið iðnaðarlegt yfirbragð, sem mér finnst mjög heillandi. Þar er líka mun rólegra en á Manhattan, sem getur verið yfirþyrmandi á köflum. 

Það er líka fullt af frábærum kaffihúsum, veitingastöðum og litlum verslunum hérna, og það skemmir ekki fyrir að hverfið er við vatnið með fallegu útsýni yfir borgina.

Fallegt umhverfi í Greenpoint.Aðsend

Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?

Undanfarið hef ég farið aðeins of oft á Eagle Trading Company í Greenpoint. Ég sit þar í þessum skriflegu með einn frábæran kaffibolla. Ef ég á að vera hreinskilin þá á ég engan einn uppáhaldsveitingastað. 

Ég hef frekar gaman af því að prófa eitthvað nýtt, enda eru möguleikarnir hér endalausir. Bubby’s er þó alltaf góður kostur fyrir brunch og ef ég sting upp á stað er það yfirleitt sá.

Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?

Draumadagurinn myndi byrja á góðum kaffibolla og rölti í fallegu veðri. Góður brunch með vinum kæmi þar á eftir, kannski heimsókn á listasafn eða eitthvert annað menningarlegt, og svo smá tími fyrir mína eigin sköpun. Góður matur og óslitinn svefn í lok dags myndi svo toppa þetta allt saman.

Sandra elskar góðan bolla í borginni.Aðsend

Hefurðu fundið fyrir heimþrá?

Það kemur auðvitað fyrir. En eftir öll þessi ár erlendis er lífið langt frá heiman orðið svo eðlilegur hluti af hversdeginum að ég hugsa ekki alltaf út í það. Ég þekki eiginlega ekkert annað en að búa langt frá fólkinu mínu heima á Íslandi.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?

Það fyrsta sem mér dettur í hug er hvað maður venst ótrúlega miklu. New York er svo fjölbreytt borg og maður verður vitni að svo mörgu á hverjum degi sem manni hefði kannski þótt mjög skrítið eða óvenjulegt áður fyrr. Eftir að hafa búið hér í svona mörg ár er maður hættur þó að kippa sér upp við margt sem öðrum þætti kannski ansi sérstakt. Það er bara orðið hluti af daglegu lífi.

Hvað er fram undan?

Ég er meðal annars að vinna að nýjum verkefnum með galleríi í Brooklyn þar sem verk eftir mig verða til sýnis. Ég er einnig að undirbúa önnur spennandi verkefni tengd listsköpuninni sem ég vonast til að geti litið dagsins ljós í byrjun næsta árs. Það verður því nóg um að vera á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.