Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2026 19:43 Að minnsta kosti 26 liggja í valnum og þar af eru tveir björgunarsveitarmenn og fjórir lögregluþjónar sem voru að leita að fólki í rústunum þegar fleiri sprengjum var varpað á þær. Almannavarnir Úkraínu Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað.
Árásirnar voru gerðar í bænum Komyshuvakha í Sapórisjía. Fyrstu sprengjurnar féllu þegar íbúar bæjarins komu saman í skólanum, eins og þeir gera reglulega samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, til að fá mat. Fleiri sprengjum var svo varpað og drónaárásir gerðar í kjölfarið og segir forsetinn að þeim hafi í einhverjum tilfellum verið miðað á byrgi sem fólk hafði leitað sér skjóls í. Sprengjur féllu einnig á rústirnar þegar björgunaraðilar voru að störfum og eru tveir björgunarsveitarmenn og fjórir lögregluþjónar meðal hinna látnu. An utterly horrific Russian attack on the settlement of Komyshuvakha in the Zaporizhzhia region. Since this morning, the settlement has been hit several times by aerial bombs. The strikes targeted a school used for humanitarian purposes – people were receiving humanitarian aid there. After the first aerial bomb strike, there was a double-tap strike with nine more bombs, specifically targeting the shelter where people were taking cover. Tragically, 18 people have already been reported killed. My condolences to their families and loved ones. Five people have been injured. A rescue operation is underway at the site, and the search for people continues. It is extremely difficult. Military forces, first responders, and special services are involved. The Russians could not have been unaware that every week, local residents who had remained in Komyshuvakha received humanitarian aid at that very location. And this is further proof that Russia wants no de-escalation and no real justice. After the humanitarian operation in Oleshky, there was a moment when the next steps could have shown that progress toward peace was possible. With these killings, Russia is sending an entirely opposite signal: Russia is counting on more killings. There must be a response to this – a response from the world. A strong and tough response. A response to Russia. And support for Ukraine. We must protect lives. Thank you to everyone who is helping!— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) November 2, 2026 Á ensku eru árásir sem þessar kallaðar „Double-Tap“ árásir og eru þær iðulega gerðar af hryðjuverkamönnum víðs vegar um heiminn og er þeim ætlað að valda miklu mannfalli meðal viðbragðsaðila sem bregðast við fyrstu árásinni. Rússar voru á árum áður ítrekað sakaðir um árásir sem þessar í Sýrlandi en þeir hafa einnig gert fjölmargar í Úkraínu. Selenskí segir íbúa hafa komið saman í skólanum í hverri viku til að fá mat og að ómögulegt sé að Rússar hafi ekki verið meðvitaðir um það. „Þetta er enn önnur sönnun þess að Rússar hafa ekki áhuga á að draga úr spennu eða einhvers konar réttlæti.“ Fleiri borgarar falla Komyshuvakha er í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá víglínunni og hafa Rússar reglulega varpað sprengjum á bæinn. Oft notast þeir við svokallaðar svifsprengjur, sem eru yfirleitt stórar sprengjur búnar vængjum og staðsetningarbúnaði. Þeim er varpað úr flugvélum í mikilli hæð og á miklum hraða og geta því svifið tugi kílómetra áður en þær lenda á skotmörkum sínum, ef þær hitta, án nokkurs fyrirvara. Frá vettvangi árásanna.Almannavarnir Úkraínu Þessar árásir fylgja á hæla annarra ítrekaðra árása sem óbreyttir borgarar hafa fallið í að undanförnu. Mannfall meðal óbreyttra borgara hefur aukist töluvert á undanförnum mánuðum. Í september dóu til að mynda að minnsta kosti 328 óbreyttir borgarar í árásum sem þessum, sem var 85 prósentum fleiri en í september í fyrra. Um miðjan síðasta mánuð sögðu sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna að útlit væri fyrir að svipaða sögu yrði að segja af október.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Sjá meira