Viðskipti innlent

Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis

Agnar Már Másson skrifar
„Borealis á verulegar kröfur á hendur þeirra félaga sem standa að baki málshöfðuninni [...] og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar.“
„Borealis á verulegar kröfur á hendur þeirra félaga sem standa að baki málshöfðuninni [...] og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar.“ Egill Aðalsteinsson

Lögfræðingur Borealis Data Centers, sem rekur gagnaver á Blönduósi, segir ásakanir Adomat & Heidenblut M 1 á hendur Borealis ekki eiga við rök að styðjast. Adomat hafi reynt að valda félaginu tjóni með ásökunum sem birtust í fréttatilkynningu fyrr í dag.

Borealis og Adomat & Heidenblut deila nú fyrir dómstólum um leigusamning.

Adomat & Heidenblut M 1 ehf. sagðist í fréttatilkynningu í dag hafa stefnt Borealis Data Center vegna meintra vanefnda á leiguskuld sem hljóðaði upp á um 900 milljónir króna. Málsmeðferð hófst í dag.

Málið var sagt varða leigusamning frá júní 2022, þar sem Adomat leigði Borealis tæplega tvö þúsund sérhæfðar tölvur til notkunar í gagnaveri félagsins á Blönduósi. Samkvæmt kröfu Adomat hætti Borealis að greiða mánaðarlega leigu undir lok árs 2022 og hefur síðan hvorki greitt leiguna né afhent búnaðinn til baka, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Í yfirlýsingu Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðings Borealis Data Center, til fréttastofu segir aftur á móti að málið varði fyrrverandi viðskiptavin Borealis, Adomat & Heidenblut M 1 ehf. og önnur tengd félög erlendis sem hafi hætt að greiða fyrir þjónustu sem þeim var veitt.

„Borealis á verulegar kröfur á hendur þeim félögum sem standa að baki málshöfðuninni vegna ógreiddrar þjónustu og eru þær kröfur talsvert hærri en þær kröfur sem Adomat & Heidenblut M 1 ehf. telur sig kunna að eiga á hendur Borealis, séu þær einhverjar.“

Búnaðurinn sé í vörslu Borealis vegna ógreiddra skulda viðskiptavinarins og það sé í samræmi við skilmála í samningum milli aðila.

„Við teljum þær ásakanir sem koma fram í fréttatilkynningu félagsins Adomat & Heidenblut M 1 ehf. ekki eiga við rök að styðjast og tilgangur hennar sé að reyna að valda félaginu áframhaldandi tjóni,“ skrifaði lögmaðurinn.

Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

„Niðurstaða málsins mun ekki hafa áhrif á rekstur Borealis eða áform þess um áframhaldandi uppbyggingu,“ segir í yfirlýsingu frá lögfræðingi Borealis.

Greint var frá því í Lögbirtingablaðinu í október að bæði Skatturinn og KPMG Law hefðu gert kröfur um að bú Adomat & Heidenblut M1 yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotamálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 9. desember. Félagið var afskráð í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×