Enski boltinn

Á­fram skorar Andri Lucas

Aron Guðmundsson skrifar
Andri Lucas ræðir hér við dómara leiksins í kvöld.
Andri Lucas ræðir hér við dómara leiksins í kvöld. Vísir/Getty

Andri Lucas Guðjohnsen var enn og aftur á skotskónum í liði Blacburn Rovers í ensku B-deildinni í kvöld en mark hans dugði ekki til gegn Stoke City. Lokatölur 2-1 sigur Stoke.

Um níunda mark Andra Lucasar var að ræða í ensku B-deildinni á yfirstandandi tímabili en landsliðsframherjinn hefur farið á kostum á tímabilinu. 

Stoke City komst í stöðuna 2-0 í leik kvöldsins en Andri Lucas minnkaði muninn fyrir Blackburn á 87. mínútu. 

Skömmu seinna virtist hann vera að jafna metin fyrir Blackburn er hann kom boltanum aftur í netið en markið var ekki tekið gilt þar sem dómari leiksins dæmdi Andra brotlegan í aðdraganda marksins.

Lokatölur urðu 2-1 Stoke City i vil. Blackburn er í 14. sæti ensku B-deildarinnar með átján stig eftir fjórtán leiki. Stoke er í þriðja sæti. 

Andri Lucas er næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk en það er Will Lankshear, leikmaður Middlesbrough sem er markahæstur í deildinni með þrettán mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×