Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar 4. nóvember 2026 13:00 Í haust hóf ég námsleyfi og settist aftur á skólabekk við Háskóla Íslands, þar sem ég legg stund á nám í Farsæld barna. Námið er virkilega áhugavert og hefur vakið mig til umshugsunar um stöðu barna og ungmenna hér á landi. Ég hef starfað sem grunnskólakennari í 26 ár og hef því víðtæka reynslu á starfi með börnum. Undanfarið hef ég verið ansi hugsi. Hugsi yfir því hvert við stefnum sem samfélag og hvernig við ætlum í raun að standa vörð um börnin okkar. Árið 2021 voru samþykkt lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem tóku gildi í ársbyrjun 2022. En í fyrstu grein laga segir: „Lögum þessum er ætlað að stuðla að farsæld barna. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.“ En erum við sem samfélag að standa við þessi orð? Undanfarið höfum við heyrt af uppsögnum og niðurskurði hjá sveitarfélögum, meðal annars í þjónustu sem snýr að börnum og fjölskyldum. Ég verð að viðurkenna að mér blöskrar. Hvernig eigum við að tryggja samþætta þjónustu án hindrana ef við fækkum því fagfólki sem að á að veita hana? Fagmennska og góður vilji duga skammt ef fjármagn og mannafli eru ekki til staðar. Við tölum endalaust um snemmtæka íhlutun, forvarnir og mikilvægi þess að grípa börn áður en vandinn verður of stór. En hvað gerist þegar úrræðin vantar? Þegar fjölskyldur þurfa að bíða lengi eftir aðstoð? Þegar starfsfólk er komið að þolmörkum? Mig langar einnig að nefna stöðu ungs fólks sem glímir við fíknivanda. Mér finnst afskaplega sorglegt að heyra af þeim átökum sem blasa við í meðferðarþjónustu hér á landi. Sjúkrahúsið Vogur gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki, plássin eru þó ekki mörg og biðlistinn langur. Aðeins örfáir einstaklingar þar einmitt núna. Hvað með þau ungmenni sem þurfa meiri og sérhæfðari aðstoð en þar er hægt að veita? Eru úrræðin nægilega mörg? Erum við að tryggja að þau fái þá hjálp sem þau þurfa, þegar þau þurfa á henni að halda? Er ekki galið að velferðarríkið Ísland eigi ekki úrræði við hæfi þegarkemur að fíknivanda ungra einstaklinga, að foreldrar þurfi að borga háar fjárhæðir og senda börn sín erlendis í viðeigandi meðferðir. Ég geri mér fulla grein fyrir því að fjárhagur ríkis og sveitarfélaga er ekki ótakmarkaður. En erum við virkilega að spara með því að draga úr þjónustu við börn og ungmenni? Er ekki hætt við að sá sparnaður verði margfalt dýrari þegar fram líða stundir? Við sem þjóð höfum sett okkur metnaðarfull markmið með farsældarlögunum. Þar höfum við viðurkennt mikilvægi þess að kerfin vinni saman, að börn fái þjónustu við hæfi og að enginn falli á milli kerfa. En það er ekki nóg að setja falleg lög ef ekki er tryggt að hægt sé að framfylgja þeim. Það sem veldur mér mestum áhyggjum er bilið á milli þess sem sagt er að eigi að gera og þess sem er í raun gert. Börnin okkar eiga betra skilið. Farsæld barna má ekki vera bara falleg orð á blaði. Hún verður að sjást í verki. Höfundur hefur starfað sem grunnskólakennari í 26 ár og stundar nú nám í farsæld barna við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun