Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar 3. nóvember 2026 16:33 Það er algjörlega ómögulegt fyrir okkur í ferðaþjónustunni að sitja þegjandi undir ummælum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og söguskýringum hennar í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Það má hafa skilning á því að stjórnarliða skortir raunveruleg og gild rök fyrir því að leggja enn og aftur nýja skatta á ferðaþjónustuna. En það er hins vegar ekki góður bragur á því að reyna að að skrifa söguna upp á nýtt og snúa staðreyndum á hvolf til þess að rökstyðja eigin fyrirætlanir. Ríkið studdi og fékk ríflega til baka Að ríkið hafi stutt ferðaþjónustuna í heimsfaraldrinum er ekki sjálfstæður rökstuðningur fyrir nýrri skattlagningu árið 2027. Stuðningurinn í Covid var hluti af víðtækum efnahagsaðgerðum vegna fordæmalauss áfalls og stóð öllum fyrirtækjum til boða. Megin tilgangurinn var að reyna að halda ráðningarsambandi fyrirtækja og starfsfólks og halda fólki við störf frekar en að senda það á atvinnuleysisbætur. Hitt markmiðið var að nýta lærdóminn úr efnahagshruninu 2008 og halda fyrirtækjum landsins á lífi til þess að viðspyrnan tæki ekki langan tíma eftir áfallið. Þessi aðgerð heppnaðist frábærlega og ríkið fékk allt sem það lagði í þetta til baka og gott betur. Þetta gerðist á undra skömmum tíma. Ólíku saman að jafna Það stenst heldur enga skoðun að hugmyndum um innheimtu innviðagjalda hafi verið frestað um 15 ár. Á því tímabili hefur verið lagður á aragrúi af allskyns gjaldtöku og sköttum um allt land og ríkið hefur þar verið lang stórtækast. Má þar nefna marghækkaðan gistináttaskatt, innviðagjöld, bílastæðagjöld í þjóðgörðum og ýmsum öðrum þjónustugjöldum. Umhverfið í dag er allt annað en þegar náttúrupassi var fyrst til umræðu. Rétt skal vera rétt Þá er það einfaldlega rangt að þær hugmyndir sem nú liggja á borðinu, og hljóða upp á 10,7 milljarða króna skattahækkanir, eða um helming af afkomu ferðaþjónustunnar, hafi verið unnar í raunverulegu samráði við atvinnugreinina. Það voru samtöl um náttúru- og innviðagjaldið, en endanleg útærsla birtist atvinnugreininni ekki fyrr en atvinnuvegaráðherra lagði fram frumvarpsdrögin. Aðrar fyrirhugaðar breytingar á álögum sem snerta ferðaþjónustuna, beint eða óbeint, voru ekki unnar í neinu samráði við greinina. Stjórnvöld virðast ætla að draga kraftinn og seigluna úr ferðaþjónustunni með þessum aðgerðum sem SAF hafa lagst gegn og mótmælt með kröftugum hætti. Klár móðgun við Suðurland og ferðaþjónustuna Sú fullyrðing að Suðurland hafi fengið ótrúleg tækifæri og nú þurfi að taka það niður er hrein og klár móðgun við ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi sem hafa með dugnaði og þrautseigju byggt upp ferðaþjónustu sem hefur skilað bæði landshlutanum og landsmönnum öllum ómældri hagsæld. Forsætisráðherra lét hins vegar ógert að svara þeirri spurningu sem beint var að henni áður en hún fór í pontu Alþingis. Spurt var hvort að stjórnvöld hafi metið heildaráhrif fyrirhugaðra álaga á atvinnulíf, störf og fjárfestingar? Margt bendir til að ávinningurinn fyrir ríkissjóð af þessum hugmyndum verði, þegar upp er staðið lítill sem enginn, vegna þeirra heildaráhrifa sem þessi álagning hefur á ferðamenn og fyrirtæki. Óásættanlegur rökstuðningur Það er einfaldleg óásættanlegt fyrir landsmenn að horfa upp á forsætisráðherra svara gagnrýni á nýja skattlagningu árið 2027 með því að vísa til aðstæðna árið 2020 og hugmynda frá því fyrir 15 árum. Við þurfum stjórnmálamenn sem hafa hugrekki til að starfa í núinu og horfa til framtíðar. Stjórnmálamenn sem leggja staðreyndir og heildarhagsmuni þjóðarinnar til grundvallar ákvörðunum sínum. Ekki stjórnmálamenn sem reyna að endurskrifa söguna til að réttlæta nýja skattlagningu. Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Óskarsson Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun