Skoðun

Smjörklípa Þor­gerðar

Hjörvar Sigurðsson skrifar

Mikil umræða hefur eðlilega skapast um ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, þar sem hann hvatti forseta Frakklands til að beita kjarnorkuvopnum gegn Rússum, með öllum þeim milljónum dauðsfalla sem af því myndu leiða.

Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var spurð um málið greip hún til aðferðar sem iðulega er kölluð „smjörklípa“. Þar víkur viðkomandi sér undan gagnrýni með því að beina ásökunum að einhverjum öðrum, sem veldur því að athygli og umræða beinast þangað frekar en að upprunalega málefninu. Það er því ákveðin kaldhæðni fólgin í því að Þorgerður fylgdi því eftir með að ásaka aðra um að beita smjörklípunni…

Smjörklípa Þorgerðar fólst í því að ásaka Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, um að standa með Rússum í árásarstríði þeirra gegn Úkraínu. Það virðist vera vegna þess eins að Ólafur er þeirrar skoðunar, eins og flestir þeir sem aðhyllast raunhyggjupólitík umfram tilfinningapólitík, að stækkun NATO til austurs hafi verið ögrun í garð Rússlands og að legið hafi fyrir að slíkt myndi knýja fram átök við Rússland. Meðal skoðanabræðra Ólafs má til dæmis nefna John Mearsheimer, einn fremsta stjórnmálafræðing nútímans, og hagfræðinginn Jeffrey Sachs, sem er sömuleiðis einn þeirra fremstu á sínu sviði.

Höfum það á hreinu að vel er hægt að viðurkenna að útbreiðsla NATO til austurs hafi leitt til innrásar Rússlands án þess að í því felist réttlæting á árásinni. Þetta snýst um raunhyggju. Þetta snýst um að skilja að þjóðarleiðtogar eru ekki alltaf sammála um hvað sé rétt og að horfa þurfi til raunverulegra afleiðinga ákvarðana frekar en að heimta að andstæðingar okkar láti einfaldlega undan, viðurkenni að við höfum rétt fyrir okkur og bregðist ekki við.

Tvö þemu má greina í þessu. Annars vegar er það sú venja Þorgerðar og ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að taka tilfinningarök fram yfir rök raunhyggjunnar. Hins vegar er það tilhneiging Þorgerðar til að grafa undan trúverðugleika fólks með því að strámanna það í stað þess að takast á við rök viðkomandi. Þetta er ein af birtingarmyndum þess popúlisma sem einkennir Þorgerði og pólitík hennar. Þetta eigum við að fordæma. Við eigum að geta verið ósammála án þess að eigna fólki skoðanir eða ásetning sem það hefur ekki. Það er sérstaklega mikilvægt að stjórnmálamenn tileinki sér þessa afstöðu, því annars er aukin skautun óhjákvæmileg afleiðing.




Skoðun

Sjá meira


×